fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Erla Björk skorar á Ölmu – „Var þá þegar búið að ákveða að íslenskar konur væru ekki meira virði?“

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 15. júlí 2021 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarin ár hafa íslenskar stúlkur verið bólusettar gegn hpv-veirunni sem getur valdið leghálskrabbameini sem og krabbameini í skapabörmum, leggöngum, endaþarmi og hálsi. Til eru nokkrar tegundir hpv og hér á Íslandi hefur verið bólusett með efninu Ceravarix veitir vörn gegn hpv-veirum af gerð 16 og 18.

Í opnu bréf til Ölmu D. Möller Landlæknis og embættis hennar í Morgunblaði dagsins segir Erla Björk Þorgeirsdóttir, verkfræðingur, að á þessum tíma hafi verið til  betra lyf, Gardasil, sem veitti vörn gegn áðurnefndum veirutegundum en að auki vörn gegn veirum af gerð 6 og 11. Síðan hafi tíminn liðið og nú sé kominn betrumbætt útgáfa, Gardasil 9, sem veiti vörn gegn alls níu tegundum af hpv-veirum auk þess sem lyfið ræðst gegn kynfæravörtum.

„Af hverju var útboðinu þannig háttað að hægt var að taka til­boði upp á lak­ara lyf en það sem best gerðist á þeim tíma? Var þá þegar búið að ákveða að ís­lensk­ar kon­ur væru ekki meira virði en svo að ann­ars flokks lyf væru nógu góð?“ spyr Erla Björk Landlækni.

Þá bendir hún á að með því að velja lyf sem ekki nái öllum hpv-veirunum haldi áfram að vera þörf fyr­ir skimanir við leg­hálskrabba­meini og hpv-veirunni, spegl­an­ir, keilu­sk­urði, leg­háls­nám og legnám.

„Þrátt fyr­ir öll þessi inn­grip deyja nokkr­ar kon­ur á ári úr leg­hálskrabba­meini sem er al­ger­lega hægt að koma í veg fyr­ir. Til þess að út­rýma þess­um vá­gesti úr okk­ar sam­fé­lagi þarf að bólu­setja allt ungt fólk (bæði kyn) með Gardasil 9. Karl­menn deyja vissu­lega ekki úr leg­hálskrabba en þeir eru smit­ber­ar. Á meðan þeir eru ekki bólu­sett­ir hring­sól­ar þessi veira í sam­fé­lag­inu,“ segir Erla Björk.

Þá segir hún að allt klúðrið við leghálssýnarannsóknir hérlendis bendi til þess að mikil kvenfyrirlitning einkenni málaflokkinn. „Hvenær ætl­ar land­lækn­ir að tryggja ís­lensk­um ung­menn­um bólu­setn­ingu gegn hpv og spara kon­um þján­ing­ar og ótíma­bær dauðsföll? Er það rétt að aðeins sýn­um frá kven­kyns lækn­um hafi verið fleygt?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa