fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Guðni Th. er 53 ára í dag – „Dagur gleði og gæfu er runninn upp“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 26. júní 2021 09:20

Guðni Th. Jóhannesson. Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands fagnar 53 ára afmæli sínu í dag. Guðni tjáir sig um daginn í færslu á Facebook-síðu sinni í dag en þar fagnar hann því að sóttvarnartakmörkunum hefur verið aflétt. Hann biður fólk þó um að hafa varann enn á þar sem veiran geisar áfram víða í heiminum. „Dagur gleði og gæfu er runninn upp. Á miðnætti féllu úr gildi allar hömlur hér innanlands vegna farsóttarinnar sem hefur leikið okkur svo grátt síðustu misseri. Enn skulum við þó hafa varann á, veiran geisar áfram víða um heim,“ segir Guðni í færslunni.

„Engu að síður megum við hér heima fagna okkar merku tímamótum. Ég hugsa hlýtt til þeirra sem misst hafa ástvini vegna vágestsins, auk þeirra sem veikst hafa af völdum hans. Og ég hugsa með djúpu þakklæti til allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum í heimsfaraldrinum, í þágu alls samfélagsins.“

Guðni segir að hann hefði varla getað óskað sér betri tíðinda á afmæli sínu og á þar við afléttingarnar á samkomutakmörkununum. „Við stóðum saman, við Íslendingar. Við treystum á mátt vísinda og þekkingar, við sýndum hvað í okkur býr þegar á reyndi. Höldum áfram vöku okkar og þá mun allt fara vel.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás
Fréttir
Í gær

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni