fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Eyjan

Aftur sviptingar í prófkjöri xD – Friðjón mættur á topp 8 og Sigríður dettur út

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 6. júní 2021 00:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú hafa verið talin 5972 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og aftur hefur staðan breyst. Nú hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra aftur tekið forystuna og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, er dottin niður úr 8. sæti og Friðjón R. Friðjónsson almannatengill kominn í hennar stað. Hann sóttist eftir fjórða sæti en hlýtur að telja ánægjulegt að vera kominn á top 8 listann. Brynjar Níelsson er áfram í sjötta sæti, en hann var í því fjórða þegar fyrstu tölur birtust. Sætið sem hann sóttist eftir var 2. sætið.

Um 7500 greiddu atkvæði í dag og því ekki mikið af atkvæðum eftir og næstu tölur sem birtast verða lokatölur.

Staðan á listanum er eftirfarandi :

  1. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
  2. Guðlaugur Þór Þórðarson
  3. Diljá Mist Einarsdóttir
  4. Hildur Sverrisdóttir
  5. Birgir Ármannsson
  6. Brynjar Níelsson
  7. Kjartan Magnússon
  8. Friðjón R. Friðjónsson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Veit Einar Þorsteinsson hvenær hann segir satt og hvenær hann er að ljúga?

Orðið á götunni: Veit Einar Þorsteinsson hvenær hann segir satt og hvenær hann er að ljúga?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Skuldum börnunum að halda áfram með Samgöngusáttmálann

Björg Magnúsdóttir: Skuldum börnunum að halda áfram með Samgöngusáttmálann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Árni Stefán skrifar: Opið bréf til atvinnuvegaráðherra – Fordæmum ofbeldi gegn MAST – fordæmum ofbeldi MAST

Árni Stefán skrifar: Opið bréf til atvinnuvegaráðherra – Fordæmum ofbeldi gegn MAST – fordæmum ofbeldi MAST