fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Pressan

Stuðningsmenn Trump sögðu að dáinn maður hefði greitt atkvæði – Sannleikurinn var allt annar

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 18. nóvember 2020 05:27

Donald Trump fyrrum Bandaríkjaforseti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump og kosningaframboð hans hafa haldið því fram að fjöldi nafngreindra látinna Bandaríkjamanna hafi greitt atkvæði í forsetakosningunum. En þetta eru vafasamar fullyrðingar því margir þessara kjósenda eru svo sannarlega á lífi.

Þessar ásakanir Trump og hans fólks eru liður í að reyna að grafa undan úrslitum forsetakosninganna sem Trump á greinilega mjög erfitt með að sætta sig við að hafa tapað. Trump og stuðningsfólk hans hafa veist að bréfatkvæðum, hugbúnaði þeim sem er notaður við talningu atkvæða og starfsfólki á kjörstöðum og talningarstöðum. Forsetinn hefur einnig haldið því fram að látið fólk hafi greitt atkvæði og hefur framboð hans birt nöfn margra þeirra sem eru sagðir vera látnir.

Þeirra á meðal er James Blalock frá Covington í Georgíu sem barðist í síðari heimsstyrjöldinni. Vandamálið við atkvæði hans? Jú, hann lést í janúar 2006. „Því miður er herra Blalock fórnarlamb kosningasvika,“ skrifaði kosningaframboð Trump á Twitter og birti mynd af dánartilkynningu Blalock. Tucker Carlson, hjá Fox News, tók undir þetta í beinni útsendingu og sakaði einhvern um að hafa greitt atkvæði í nafni Blalock. „Herra Blalock var bréfberi í 33 ár, þar til hann lést 2006. 14 árum síðar sendi hann samt póst. Hann kaus í kosningunum í síðustu viku,“ sagði Carlson.

Dánartilkynningin.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hjá sjónvarpsstöðinni 11AliveNews ákvað fólk að skoða þessar ásakanir betur og var haldið heim þangað sem James Blalock var síðast skráður til heimilis. Þar hittu sjónvarpsmenn fyrir konu sem skildi lítið í málinu.

„Hann kaus ekki, hann kaus ekki. Það var ég,“ sagði konan sem heitir Agnes Blalock og er ekkja James. Í samtali við DailyMail sagði Agnes, sem er 94 ára, að hún hafi sent atkvæðaseðil sinn í pósti. Í takt við gamlar hefðir notaði hún lögformlegt nafn sitt, Frú James Blalock, en það virðist hafa valdið miklum ruglingi hjá framboði Trump.

„Ég er ekki með netfang eða neitt því líkt. En þessu var bjargað af kjörstaðnum í Covington,“ sagði hún. Fréttamaður CNN setti sig í samband við kjörstaðinn sem staðfesti misskilninginn. „Ásakanir framboðs Trump passa ekki,“ skrifaði Holmes Lybrand, fréttamaður CNN á Twitter. Hann benti einnig á að framboð Trump hafi sagt að Linda Kesler, sem lést 2003, hafi greitt atkvæði í kosningunum en það passi heldur ekki. „Kjörstjórn í Jackson í Georgíu segir mér að Linda Kesler hafi ekki greitt atkvæði. Nafn hennar var tekið af kjörskrá 2003 þegar hún lést. Lynda Kesler greiddi hins vegar atkvæði á löglegan hátt,“ skrifaði hann einnig.

Lybrand og CNN fóru í gengum lista kosningaframboðs Trump með nöfnum 14.000 látinna sem áttu að hafa greitt atkvæði í Michigan. 50 nöfn voru valin af handahófi og kannað hvort þau hefðu greitt atkvæði. Svo reyndist ekki vera. 37 af þessum 50 reyndust vera látnir og kusu ekki, sjö voru á lífi og kusu á löglegan hátt en 8 voru á lífi og kusu ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Keypti sjö líftryggingar fyrir eiginkonuna og svo dó hún á dularfullan hátt

Keypti sjö líftryggingar fyrir eiginkonuna og svo dó hún á dularfullan hátt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída
Pressan
Fyrir 4 dögum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 5 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra