fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025

Krúttlegustu óléttubumburnar – Stjörnunar fjölga sér

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 18. júlí 2020 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Katy Perry á von á barni með unnusta sínum, breska leikaranum Orlando Bloom. Þetta er fyrsta barn Katy en fyrir á Orlando soninn Flynn með fyrirsætunni Miranda Kerr. Skötuhjúin brugðu sér á ströndina í Malibu í vikunni þar sem Orlando sýndi listi sínar á brimbretti á meðan Katy buslaði í sjónum í fjólubleikum sundbol sem knúsaði sældarlega bumbuna.

Fullkomin slökun: Kevin laumaðist til að taka mynd af eiginkonunni og birti á samfélagsmiðlum.

Grínistinn Kevin Hart og eiginkona hans Eniko eiga von á sínu öðru barni en saman eiga þau hinn tveggja ára gamla Kenzo Kash. Kevin tók á dögunum einstaklega krúttlega laumumynd af sinni heittelskuðu þar sem hún lá eins og slytti í sófanum í fullkominni slökun. Grínistinn birti hana á Instagram með þeim fyrirvara að eiginkonan myndi eflaust drepa hann fyrir myndbirtinguna. Óþarfa áhyggjur hjá Kevin því myndin er einfaldlega yndislega falleg og fangar augnablikið.

Horfir til himins: Sophie er sumarleg og sæt með hvutta sér við hlið.

Game of Thrones leikkonan Sophie Turner og tónlistarmaðurinn Joe Jonas eiga von á sínu fyrsta barni. Sophie og Joe giftu sig í maí í fyrra en þau hafa verið saman síðan 2016. Þessi fallega mynd af Sophie í hvítum sumarkjól með hvutta sér við hlið var tekin í byrjun mánaðarins þegar þau Joe voru á leið í mat ásamt foreldrum hennar. Það er eitthvað svo hlýlegt og fallegt við það hvernig hún horfir til himins með höndina á maganum.

Svöl í sólinni: Söngkonan Ciara er tveimur númerum of svöl á þessari mynd.

Söngkonan Ciara og eiginmaður hennar Russell Wilson bíða nú spennt eftir komu þriðja barnsins í heiminn. Fyrir eiga þau fimm ára son, Future Zahir Wilburn, og tveggja ára gamla dóttur, Sienna Princess Wilson. Í myndbandi sem hjónin birtu á samfélagsmiðlum fyrir skemmstu kom fram að þau eiga von á öðrum strák. Þau eru að vonum kampakát og spennt fyrir nýjum fjölskyldumeðlim.

Barnalán: Hilaria og Alec eiga von á sínu fimmta barni saman.

Á þeim aldri sem flestir fara að slaka aðeins á og stunda golf gefur leikarinn Alec Baldwin bara í þegar kemur að barneignum. Alec sem er 62 ára gamall og eiginkona hans, jógakennarinn og heilsugúrúinn Hilaria sem er 36 ára, eiga nú von á sínu fimmta barni saman. Alec á fyrir 24 ár gamla dóttur, Ireland, með leikkonunni Kim Basinger en þau fjögur yngri eru tveggja, þriggja, fjögurra og sex ára. Það er ljóst að það verður ekki mikil afslöppun í kortunum hjá gamla á næstunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Ólýsanlegur harmleikur rústaði lífi tveggja fjölskyldna eftir að lögreglan fór mannavillt – „Mamma, ég elska þig en ég get þetta ekki“

Ólýsanlegur harmleikur rústaði lífi tveggja fjölskyldna eftir að lögreglan fór mannavillt – „Mamma, ég elska þig en ég get þetta ekki“
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Grunlaus fótboltaaðdáandi slær í gegn – „Ég fékk Coldplay-meðferð“

Grunlaus fótboltaaðdáandi slær í gegn – „Ég fékk Coldplay-meðferð“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Enn á ný baunað á KSÍ eftir uppákomu í kvöld – „Þessar reglur eru grín og það vita það allir“

Enn á ný baunað á KSÍ eftir uppákomu í kvöld – „Þessar reglur eru grín og það vita það allir“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Framkvæmdastjóri N1: Pítsufyrirtækið var besti skólinn

Framkvæmdastjóri N1: Pítsufyrirtækið var besti skólinn
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrrum dómsmálaráðherra lýsir því þegar hann tilkynnti Trump um andlát Epsteins

Fyrrum dómsmálaráðherra lýsir því þegar hann tilkynnti Trump um andlát Epsteins
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gústi Gylfa hættir með Leikni eftir að hafa bjargað liðinu frá falli

Gústi Gylfa hættir með Leikni eftir að hafa bjargað liðinu frá falli

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.