fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025

Here comes the sun, and I say: It’s all right

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 29. desember 2017 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hélt upp á jólin í gær, þann 21. desember. Þetta geri ég á hverju ári enda fullkomin ástæða til að fagna því að frá og með gærdeginum munum við njóta dagsbirtunnar örlítið lengur, mínútu fyrir mínútu. Vetrarsólstöður. Meiri birta! Meiri gleði!

Þessi jákvæði viðsnúningur varð nákvæmlega klukkan 16.28 og héðan í frá, eða alveg fram til 21. júní á næsta ári, mun sólin hækka á lofti og dagurinn verða lengri. Fullkomin ástæða til hátíðarhalda – finnst þér ekki?

Ég fagnaði með einföldum hætti. Kveikti bara á fleiri kertum og hlustaði á „Here comes the sun“.

Little darling, I feel that ice is slowly melting
Little darling, it seems like years since it’s been clear
Here comes the sun
Here comes the sun, and I say
It’s all right

Fallegt.

Einhvern tímann heyrði ég að kirkjunnar feður hefðu komið fæðingardegi frelsara síns fyrir á þessa hentugu tímasetningu þar sem Rómverjar og aðrir héldu sína sólhvarfahátíð. Hjá okkur Íslendingum hefur hátíðin alltaf kallast „jól“ en margir vilja meina að orðið eigi skylt við „hjól“ og merki árstíðaskiptin og framgang lífsins.

Kirkjukörlum þótti ástæða til minnast innkomu átrúnaðargoðsins með sérlegri hátíð enda alveg frábært að guðinn þeirra skyldi stíga niður af himnum og gerast maður. Og þvílíkur maður! Gæðadrengur í gegn sem óð berfættur um og boðaði kærleika, umburðarlyndi og ást. Endalausa ást. Það gerði Búdda reyndar líka um fimm hundruð árum fyrr, Lennon fyrir 50 árum og Louise Hay þar til hún lést í ágúst á þessu ári. Love is all you need. Einfalt.

Hvort sem við kjósum að taka við skilaboðunum í gegnum Búdda, Krist, Lennon eða Louise þá gildir það einu. Áminningin um ástina og kærleikann er nauðsynleg og í raun er þessi blanda af sólarhátíð heiðinna og kærleikshátíð kristinna alveg skothelt kombó. Við höfum öll gott af meiri BIRTU!

Gleðileg jól!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Lýsir áhyggjum af stöðunni í Eyjum – „Alvarlegt merki um að kerfið sé ekki að þjóna öllum börnum jafnt“

Lýsir áhyggjum af stöðunni í Eyjum – „Alvarlegt merki um að kerfið sé ekki að þjóna öllum börnum jafnt“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Áframhaldandi vandræði hjá Reading

Áframhaldandi vandræði hjá Reading
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

3ja ára sonur íþróttafréttakonu kom einn til dyra þegar afi rak inn nefið – Inni á heimilinu beið þeirra versta martröð

3ja ára sonur íþróttafréttakonu kom einn til dyra þegar afi rak inn nefið – Inni á heimilinu beið þeirra versta martröð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Barcelona skoðar tvo miðverði til að reyna að bæta uppspil sitt

Barcelona skoðar tvo miðverði til að reyna að bæta uppspil sitt
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Siðprúðir og heiðarlegir menn beðnir um að gefa sig fram

Siðprúðir og heiðarlegir menn beðnir um að gefa sig fram
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Guardiola gagnrýnir tvo leikmenn eftir gærkvöldið – Voru orkulausir og sinntu ekki varnarvinnu

Guardiola gagnrýnir tvo leikmenn eftir gærkvöldið – Voru orkulausir og sinntu ekki varnarvinnu