fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Eyjan

Útfarir

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 19. júní 2020 20:15

Jón Steinar Gunnlaugsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Steinar Gunnlaugsson ritar:

Á Íslandi ríkir sá siður við útfarir að prestur er fenginn til að flytja minningarorð um hinn látna. Gerist þetta með þeim hætti að presturinn hittir nánustu ástvini og fær hjá þeim upplýsingar um æviferil viðkomandi manns og það sem verðugt er talið að taka með í minningarorðin.

Prestar sinna þessu hlutverki oftast af kostgæfni og flytja hugþekka lýsingu á hinum látna við athöfnina. Lýsingin nær því hins vegar sjaldan að verða persónuleg. Þetta er meira eins og greinargerð í máli þar sem gera skal upp mannkosti hins látna.

Hvers vegna gerum við þetta svona? Af hverju fáum við ekki einhvern sem þekkti hinn látna persónulega til að flytja um hann minningarorðin, jafnvel fleiri en einn hverju sinni. Þetta geta verið vinir, starfsbræður eða náin ættmenni hins látna.

Við minnumst þeirra sem andast með ritun minningargreina í blöð. Sá siður er ágætur og hefur þýðingu við að varðveita minningarnar á sinn hátt. Þetta hefur hins vegar ekki bein áhrif á helgiathöfnina við útförina.

Ég hef séð upptökur af útförum í öðrum löndum þar sem sá háttur er hafður á sem hér er nefndur. Svona ræðuflutningur getur oft verið hjártnæmur og eftirminnilegur. Fræg dæmi eru um ræðu sem stórleikarinn Kevin Costner flutti yfir æskuvinkonu sinni Whitney Houston eða ræðu sem George W. Bush yngri flutti yfir föður sínum George H. W. Bush, en báðir þessir menn höfðu gegnt embætti forseta Bandaríkjanna. Eða ræður sem fluttar voru við útför Muhammads Ali, þar sem m.a. vinir hans Billy Crystal og Bill Clinton fluttu fallegar ræður.

Það skiptir í raun engu máli hversu frægur svona ræðumaður er og þá ekki heldur hinn látni. Aðalatriðið er að sá sem talar hafi þekkt hinn látna persónulega, þótt eitthvað til hans koma og þótt vænt um hann. Svona ræðuflutningur verður oftast miklu eftirminnilegri en greinargerðir prestanna geta orðið.

Verði svona hættir teknir upp hér yrði auðvitað ekki nauðsynlegt að haga öllum útförum svona. Ef aðstandendum líkar gamla aðferðin betur geta þeir auðvitað viðhaft hana frekar. Prestar sem stýra útförum ættu að hugleiða hvort ekki sé orðið tímabært að breyta fyrirkomulagi þeirra á þennan veg.

Eins ættu aðstandendur að huga að þessu sjálfir, enda verður ekki séð að neitt mæli gegn því að haga útför ástvinar á þann hátt sem hér er nefndur.

Jón Steinar Gunnlaugsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 18 klukkutímum
Útfarir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun