fbpx
Miðvikudagur 13.ágúst 2025

Vanþakklátur ráðherra

Svarthöfði
Sunnudaginn 31. maí 2020 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirfarandi er pistill Svarthöfða sem birtist í helgarblaði DV sem kom út á föstudag

Heilbrigðisráðherra náði að skíta upp á bak í vikunni þegar hún móðgaði Kára fokkins Stefánsson í beinni útsendingu á upplýsingafundi almannavarnateymis ríkislögreglustjóra. Hvílíkt klúður. Hún fór með svakalega dramatíska ræðu, skreytta blúndum og pífum, þar sem hún þakkaði þríeykinu fræga, samfélaginu og nánast öllum heiminum, nema Kára Stefánssyni og Íslenskri erfðagreiningu. Svarthöfði hjó eftir þessu en hélt að hann væri einn á báti þar til Kári sjálfur steig fram og lýsti því yfir opinberlega að hann væri farinn í fýlu út í ráðherra og sóttvarnalækni og skammaðist sín ekkert fyrir að viðurkenna það.

Flott hjá þér, Kári. Svarthöfði stendur fast á því að þegar manni sárnar eða þegar maður reiðist út í náunga sinn, þá á maður að tala um tilfinningar sínar, frekar en að leyfa þeim að gerjast og súrna inni í líkama sínum. Þáttarstjórnandi Kastljóss kallar þig kannski ruglaðan, en hvað veit hann? Það er ekki barnalegt að segja satt, það er fullorðins. Það sem er barnalegt er að skilja út undan.

Íslensk erfðagreining steig inn í COVID-faraldurinn og létti undir með opinbera heilbrigðiskerfinu í skimunum. Ekki nóg með það, heldur söfnuðu þau saman upplýsingum, greindu og áttu því mikilvægt framlag í faraldursfræði COVID-19 á alþjóðagrundvelli. Litla Íslandið okkar var dásamað um allan heim fyrir litlu snjöllu víkingana sem náðu tökum á faraldrinum á mettíma. Og Kári steig inn í ástandið eins og okkar eigin persónulegi Stjáni blái eftir þriðju dósina af spínati og hjálpaði okkur að redda málunum.

En hvað uppskar hann fyrir vikið? Vanþakklæti og tilætlunarsemi. Kára fokking Stefáns var treystandi fyrir að taka því óréttlæti ekki þegjandi og hljóðalaust. Svarthöfði ber endalausa virðingu fyrir honum og ættum við öll að gera það. Ekki það að Svarthöfði þurfi eitthvað að verja hann, Kári er til þess fullfær sjálfur. Hann kallaði heilbrigðisráðherra hrokafullt barn og sagðist hafa lokað á Þórólf, eitt af þremur óskabörnum þjóðarinnar um þessar mundir. Til þess þarf hugrekki og staðfestu. Enda hafði hann engar þakkir fengið fyrir framlag fyrirtækis síns og þar að auki var bara gengið út frá því að hann ætlaði að aðstoða við skimanir á Keflavíkurflugvelli. Án þess einu sinni að spyrja hann. Talandi um að grípa höndina þegar litli fingur er réttur.

Núna ætlar Svarthöfði fastlega að gera ráð fyrir því að auðmjúkur heilbrigðisráðherra bugti sig og beygi fyrir ofurmenninu Kára, biðjist afsökunar og þakki fyrir sig. Því okkur er flestum kennt frá blautu barnsbeini að þakka fyrir okkur. En kannski vildi heilbrigðisráðherra eigna hinu opinbera allan heiðurinn af þeim árangri sem hefur náðst í þessari baráttu? Hún mun hins vegar hugsa sig um tvisvar áður en hún tekur Kára fokking Stefánssyni sem sjálfsögðum hlut

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Eftir mörg hneyksli fær hún annað tækifæri – Tók upp myndband þar sem hún stundaði kynlíf í símanum

Eftir mörg hneyksli fær hún annað tækifæri – Tók upp myndband þar sem hún stundaði kynlíf í símanum
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Heftið á lofti í Garðabæ: Staðfesta þriðja erlenda leikmanninn í dag – Hefur verið hjá Ajax og fleiri liðum

Heftið á lofti í Garðabæ: Staðfesta þriðja erlenda leikmanninn í dag – Hefur verið hjá Ajax og fleiri liðum
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Stjarnan staðfestir komu tveggja landsliðsmanna frá Sierra Leone

Stjarnan staðfestir komu tveggja landsliðsmanna frá Sierra Leone
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Haaland fer fljúgandi inn í nýtt tímabil á nýjum alvöru trukk

Haaland fer fljúgandi inn í nýtt tímabil á nýjum alvöru trukk
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rashford fær vond tíðindi frá Barcelona – Ekki sá fyrsti sem félagið mun reyna að skrá í hópinn

Rashford fær vond tíðindi frá Barcelona – Ekki sá fyrsti sem félagið mun reyna að skrá í hópinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 7 klukkutímum

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi

Ungur áhrifavaldur strandaglópur á Suðurskautinu – Lenti flugvél sinni þar í heimildarleysi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Búnir að bjóða í Ederson

Búnir að bjóða í Ederson