fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Hasta la vista, baby

Svarthöfði
Laugardaginn 29. febrúar 2020 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loksins, loksins, loksins sér fyrir endann á þessum ömurlega febrúarmánuði. Svarthöfði er nánast hættur að fylgjast með fréttum, svo miklar eru hörmungarnar. Efling gaggar á Dag og Dagur fer í vörn eins og óþekkur unglingur sem hefur afsakanir fyrir öllum heimsins axarsköftum á reiðum höndum. Börnum í neyð er vísað úr landi líkt og ekkert sé sjálfsagðara, ein mesta goðsögn íslenskrar tónlistar er fallin frá og helvítis, bévítans veðrið er eins og það er. Ömurlegt.

Og hvað talar þetta fólk á Alþingi um? Jú, nú á að blása krafti í að leggja niður mannanafnanefnd. Brýnt málefni sett á oddinn. Unnið að frumvarpi í margar vikur, rætt í nefndum og rýnihópum í enn fleiri vikur og síðan rifist um það á þingpöllum í örugglega eilífð. Kostar milljón trilljónir og framtíðarbörnin Satanía og Lúsífer jesúsa sig yfir ósköpunum.

Svo er það stjórnarandstaðan sem gasprar og gasprar um að hinn og þessi í ríkisstjórn geri ekki neitt. Gerið þið þá bara eitthvað sjálf! Þessi stjórnarandstaða mun líklegast fara í sögubækurnar sem slappasta aðhald við ríkisstjórn allra tíma. Spanderar gífuryrðum í öllum fjölmiðlum sem þau komast í en eru minna að bretta upp ermarnar og moka skítinn.

Svarthöfði er svo ekki viss hvort hann hafi taugar í að ræða algjört þrot íslenskra stjórnvalda í kórónaveirufíaskóinu. Svarthöfði skal fyrr hundur heita en að láta loka sig inni í sorglegasta gámi veraldar. Þá snýst Svarthöfði í fyrsta sinn á ævinni á sveif með Ingu Sæland og hlakkar til að eyða með henni 14 dögum í keilu, pítsu, bjór og ljósabekkjum. Þá er nú mikið sagt.

Bless febrúar og takk fyrir ekkert!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

„Galið“ ef hún verður áfram á Íslandi

„Galið“ ef hún verður áfram á Íslandi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Borga metfé fyrir frænda Maradona – Tvöfalda félagsmetið

Borga metfé fyrir frænda Maradona – Tvöfalda félagsmetið