fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Græni tryllingurinn

Svarthöfði
Laugardaginn 23. nóvember 2019 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði er það sem kalla má „afneitunarpési“ þegar kemur að loftslagsmálum. Hann trúir ekki öllu sem hann heyrir, enda engin ástæða til þess. Fólk er nú einu sinni mjög gjarnt á að ljúga. Upp í opið geðið á manni.

En umræðan um loftslagsmál á Íslandi er svo skrýtin. Það eiga allir að marsera í einum takti, ekki efast, ekki dirfast að viðra aðra skoðanir en þær „réttu“. Þessi svokölluðu „vísindi“ eiga víst að búa yfir öllum svörunum. Og Svarthöfði á bara að fylgja vísindunum í blindni eins og ekkert sé sjálfsagðara. Svarthöfði á að óttast um tilveru sína ef hann flokkar ekki, minnkar neyslu, minnkar sóun, flýgur minna, leggur bensínháknum og verður í stuttu máli betri manneskja.

Þvílík endemis vitleysa. Hvernig getur einn maður eins og Svarthöfði, þótt afar kröftugur og vel gerður maður sé, haft einhver áhrif? Ef Svarthöfði flokkar plastið frá bananahýðinu, bjargar hann þá barni í Afríku? Ef Svarthöfði hitar upp afgangana frá því í gær og pínir gamlan mat ofan í sig, þýðir það þá að ástandið lagist í regnskógunum? Svarthöfða finnst einfaldlega of miklar kröfur á sig gerðar. Má hann ekki bara lifa sínu lífi eins og hann vill?

Þessi svokölluðu vísindi eru á villigötum. Vinna bara fyrir einhverja hagsmunaseggi sem græða á tá og fingri á öllum umhverfisvænu lausnunum, öllum maíspokunum sem brotna niður í náttúrunni, öllu sjálfbæra draslinu sem enginn veit hvað er.

Vísindin segja að þau tali fyrir framtíð heimsins. Hvað hafa vísindin gert fyrir Svarthöfða? Ekkert. Hvað hefur Svarthöfði gert fyrir vísindin? Allt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Í gær

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni