fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Löggan mun sekta alla sem stoppa á eftir strætó – Boltinn hjá Reykjavíkurborg

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 14. nóvember 2019 09:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyjan greindi í gær frá því að Reykjavíkurborg hefði sett upp strætóskýli við Hagatorg, líkt og Morgunblaðið greindi frá upphaflega. Sökum þess brjóta vagnstjórar umferðarlögin í hvert skipti sem þeir hleypa inn, eða taka farþega um borð og geta átt von á sektum frá lögreglu þar sem óheimilt er að stöðva ökutæki í hringtorgi samkvæmt lögum.

Sjá nánar: Reykjavíkurborg í ruglinu við Hagatorg -„Þetta hlýtur að vera einstakt á heimsvísu – ekki eins og það vanti pláss þarna“

Allir sektaðir – Boltinn hjá borginni

Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir við Morgunblaðið í dag að ekki verði aðeins vagnstjórar Strætó sektaðir fyrir að stöðva á hringtorgi, heldur einnig þeir ökumenn sem í humátt koma á eftir strætó. Þannig að ef einn strætisvagn stoppar á Hagatorgi til að hleypa út farþega og fimm aðrir bílar eru fyrir aftan, verða ökumenn allra ökutækjanna sektaðir:

„Við munum fylgjast með þessu svæði sem öðrum. Lagagreinin er alveg skýr og engin undanþága heimil.“

Árni segir þetta ástand til komið vegna Reykjavíkurborgar, sem er veghaldari á svæðinu:

„Menn geta ekki leyft sér að búa til þær aðstæður að ökumenn fái sekt vegna þess að vagnstjórar þurfa að stoppa. Bílstjórinn fær jú sektina en ekki veghaldari sem í þessu tilviki er Reykjavíkurborg./

Þetta er merkt hringtorg og þarna má nú finna strætóstoppistöð, en samkvæmt umferðarlögum er óheimilt að stöðva ökutæki á hringtorgi. Við höfum þegar komið okkar ábendingum á framfæri við Reykjavíkurborg og er boltinn hjá þeim,“

Ekki einsdæmi

Samkvæmt svörum Reykjavíkurborgar er Hagatorg ekki hefðbundið hringtorg. Einnig skoða borgaryfirvöld  að breyta umferðarmerkingum til að staðfesta þá fullyrðingu og um leið gera framkvæmdir sínar löglegar fyrir strætó til að stoppa.

Í skýringum borgaryfirvalda má skilja að Hagatorg sé einstætt, engin önnur dæmi séu um slíkar aðstæður. Það er hinsvegar ekki rétt, því líkt og Morgunblaðið bendir á, er eitt strætóskýli við hringtorgið við höfuðstöðvar Morgunblaðsins í Hádegismóum.

Að sögn Árna, er það einnig óheimilt að stöðva ökutæki þar.

Óþægileg staða

Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir við Morgunblaðið að eitthvað þurfi að gera í þessu, vagnstjórar séu settir í vonlausa stöðu:

„Ef lögreglan ætlar að fara að sekta þá þarf auðvitað að breyta þessu í samstarfi við Reykjavíkurborg því það er hún sem úthlutar okkur stoppistöðvum. Við viljum ekki vera valdir að lögbrotum, ekki frekar en aðrir.“

UPPFÆRT

Samkvæmt frétt mbl.is hefur Strætó ákveðið að loka þremur biðstöðvum vegna málsins og óvissu um lögmæti þeirra. Það eru biðstöðvarnar við Haga­torg, Há­deg­is­móa og Vörðutorg í Áslandi.

Er haft eftir upplýsingafulltrúa Strætó að samráð verði haft við Reykjavíkurborg og Hafnarfjörð um nýja staðsetningu biðstöðvanna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að