fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Össur hjólar í Jón Pétur – „Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, segir að ekki sé hægt að túlka umtalaða X-færslu Jóns Péturs Ziemsens, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á annan hátt en þann að Jón Pétur sé þeirrar skoðunar að konur séu erfðafræðilegar síður til þess fallnar að gegna stjórnunarstöðum en karlar og að menntun þeirra geti átt sök á versnandi geðheilsu.

Færsla Jóns Péturs, þar sem hann lýsir því yfir að konur á aldrinum 15-25 ára glími við mikla vanheilsu andlega og virðist rekja það til minnkandi fæðingartíðni í þessum aldurshóp og aukinnar áherslu á starfsframa og menntun, hefur vakið töluverð viðbrögð. Hefur færslan vakið reiði meðal kvenna, þar á meðal í hópi þeirra kvenna sem eiga sæti á Alþingi.

Sjá einnig: Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Össur segir að færslan feli í sér sérkennileg skilaboð til ungra kvenna á 21. öldinni. Segir hann jafnframt að hnignun Sjálfstæðisflokksins komi  ekki á óvart né að Þórdís Kolbrún hafi flúið yfir í faðm Þorgerðar Katrínar „eftir lengstu umsókn um sendiherrastöðu sem sögur fara af“:

„Plasttappakallinn á þinginu

Jón Pétur Ziemsen, hinn gagnmerka þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem frægur varð af endemum í málþófinu á Alþingi með makalauri ræðu um plasttappa, er enn að gera garðinn frægan.

Í nýlegri færslu á X segir hann að ungar konur eigi við vonda og versnandi geðheilsu að stríða. Í beinu framhaldi vekur hann athygli á því að nú hafi konum um hríð fjölgað veru­lega í flestum stjórnunar­stöðum sam­félagsins og í háskólanámi og séu nú í miklum meirihluta háskólanema.

Svo bætir þingskörungurinn við eðli sínu trúr: “Við bælum ekki niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum.” Vitaskuld tekur hann aðspurður fram að með þessu sé hann auðvitað alls ekki að leggja til að kynjahlutverkin verði færð aftur um hundrað ár.

Varla er þó hægt að túlka þetta öðru vísi en svo að þingmaðurinn sé þeirrar skoðunar að konur séu erfðafræðilega miður hæfar til að gegna stjórnunarstörfum og að menntun þeirra kunni að eiga sök á versnandi geðheilsu. Þetta eru semsagt skilaboð Sjálfstæðisflokksins til ungra kvenna á fyrsta fjórðungi 21. aldarinnar.

Rifjast þá upp ummæli þekkts Framsóknarmanns sem af öðru tilefni lét svo um mælt að staða konunnar væri á bakvið eldavélina!

Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti og að væn kona einsog Þórdís Kolbrún taki sprettinn yfir í faðm Þorgerðar Katrínar eftir lengstu umsókn um sendiherrastöðu sem sögur fara af?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

24 ára Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys í Danmörku

24 ára Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys í Danmörku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?