fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Fjárlagafrumvarpið kynnt: Ráðstöfunartekjur hækka um rúmlega 120 þúsund

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 6. september 2019 09:03

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson kynnti nýtt fjárlagafrumvarp í morgun á blaðamannafundi. Frumvarpið verður lagt fram á Alþingi þriðjudaginn 10. september nk. Kynning hefur ekki áður farið fram jafntímanlega fyrir fyrstu umræðu, en tilgangurinn er sagður sá að mæta óskum þingmanna um betri fyrirvara til að kynna sér efni málsins, að því er segir í tilkynningu.

Meðal stærstu tíðinda frumvarpsins er að tekjuskattur einstaklinga verður lækkaður hraðar en áform voru um, þannig að lækkunin kemur að fullu fram árið 2021 í stað 2022. Við þessa aðgerð hækka ráðstöfunartekjur þeirra tekjulægstu um rúmlega 120 þúsund krónur á ári.

Er heildarumfang hennar á ári um 21 ma.kr. sem samsvarar um 10% af tekjum ríkisins af tekjuskatti einstaklinga. Er þetta sagður mikilvægur liður í því að styðja við heimilin þegar hægir á í atvinnulífinu.

Auk lækkunar tekjuskatts kemur til framkvæmdar seinni hluti 0,5 prósentustiga lækkunar tryggingagjalds, en gjaldið var lækkað um 0,25 prósentustig í upphafi árs 2019. Um áramót hefur tryggingagjald því verið lækkað frá árinu 2013, úr 7,69% í 6,35% sem styður við atvinnusköpun og rekstrargrundvöll fyrirtækja.

Loforð um framfarir og aukin lífsgæði

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu er talað um framfarir og aukin lífsgæði:

„Tryggður er framgangur margra góðra mála. Þannig má nefna að breytingar á LÍN eru fjármagnaðar, ráðist verður í aðgerðir til auka nýliðun kennara og efla starfsnám og framlög til vísinda- og rannsóknasamstarfs verða aukin. Framundan er stórsókn í vegamálum og stefnt er að kostnaðarþátttöku í flugfargjöldum innanlands fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Orkuskipti verða styrkt með skattaívilnunum og styrkjum úr Orkusjóði. Framlög til loftslagslagsmála hækka og renna meðal annars til bindingar kolefnis með skógrækt, landgræðslu og endurheimt votlendis, en einnig aukast framlög til landvörslu og miðhálendisþjóðgarðs. Undirbúnar verða aðgerðir sem miða að því að bæta mönnun í hjúkrun, áfram verður unnið að eflingu heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar, og uppbyggingu hjúkrunarrýma. Unnið er að því að auka gæði í þjónustu við fötluð börn og foreldra þeirra og framlög aukin í samræmi við fyrri áform til að bæta kjör öryrkja. Stuðlað verður að atvinnuþátttöku aldraðra, réttur foreldra til fæðingarorlofs lengdur og framlög til barnabóta aukin. Einnig verða framlög tryggð til húsnæðismála í tengslum við nýlega lífskjarasamninga og boðaðar eru aðgerðir til að bregðast við húsnæðisvanda á landsbyggðinni.“

 

Hvað kostar árið 2020?

Yfir 60% af heildarfjárheimildum ríkissjóðs er varið til velferðar-, heilbrigðis og menntamála.

Frekari tölfræði má nálgast á vef Stjórnarráðsins

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðmundur Ingi Kristinsson segir sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests

Guðmundur Ingi Kristinsson segir sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?