fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026

Lúsmýið eirir engu

Svarthöfði
Sunnudaginn 16. júní 2019 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland er óðfluga að breytast í einhvers konar suðræna paradís. Hitinn er svo mikill að sjálfsagt verður ekki langt í að pálmatré fari að spretta upp og græneðlur fari að sjást á gangstéttum. Landsmenn flykkjast út á land í sumarbústaði og í dagsferðir. En þá skellur ógæfan á. Lúsmýið gerir vart við sig.

Lúsmý er versta pest sem komið hefur til landsins. Engar reglugerðir eða tilmæli yfirdýralæknis gátu stöðvað komu þess fyrir nokkrum árum síðan. Ekki frekar en landnám spánarsnigilsins voðalega. Lúsmýið leggur undir sig heilu hreppana. Sem dæmi þá hefur Borgarfjörðurinn orðið að no-go svæði út af vargnum. Hækkandi hitastig er eina skýringin.

Lúsmýið eirir engu, hvorki poppstjörnum né öðrum. Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens varð fyrir árás, líka fjölmiðlakonan Hildur Helga Sigurðardóttir. Hinn geðþekki Kalli Tomm, trymbill Gildrunnar, lenti hvað verst í lúsmýinu. Hann var sundurbitinn, bólginn og átti erfitt með svefn út af árás við heimili sitt við Meðalfellsvatn.

Við Íslendingar þekkjum ekki að búa í nálægð við árásargjörn skorkvikindi. Ekki frekar en við þekkjum stríð, fellibylji eða að geta keypt bauk af bjór í stórverslun. Okkar innfæddu pöddur, þessar örfáu hræður sem búa hér, eru svo miklir aumingjar að þær geta varla angrað nokkurn mann. Það er helst bitmýið á Mývatni sem getur gert óskunda. En þá aðeins gegn aðkomufólki og túristum.

Erlendis þekkjast skordýr og áttfætlur sem eru langtum voveiflegri en lúsmýið sem Íslendingar emja nú undan. Kóngulær með banvænu eitri, ormar sem sýkja garnir, lifrur sem geta valdið andnauð, lýs sem geta valdið taugaskemmdum og býflugur sem geta drepið fólk með samhæfðum stungum. Listinn er endalaus. Í Afríku býr til dæmis kónguló sem staðdeyfir spendýr á nóttunni og étur síðan bita af kjöti á meðan fórnarlambið sefur rótt. Fólk hefur vaknað þar kinnalaust.

Til eru þeir sem fagna eilífu sumri. Fagna hröðum loftslagsbreytingum af mannavöldum og segja: Skítt með heiminn, við fáum betra veður! En Svarthöfði er ekki einn af þeim. Svarthöfði kann betur við sig í hefðbundnu íslensku sumri. Hálfskýjað, rigning hálfan daginn, hvasst hinn. Smá sólarglæta rétt á meðan grillað er og kalt á nóttunni. Þá sjást í mesta lagi ein og ein húsfluga á stangli og nokkrir ánamaðkar á stéttinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Undirstaða efnahagslegs sjálfstæðis

Björn Jón skrifar: Undirstaða efnahagslegs sjálfstæðis
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Orðið á götunni: Mogginn orðinn ómerkilegur, óritstýrður samfélagsmiðill

Orðið á götunni: Mogginn orðinn ómerkilegur, óritstýrður samfélagsmiðill
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Ísfélagið vigtar aflann hjá fyrirtæki í eigu forstjórans eftir afturköllun leyfis

Ísfélagið vigtar aflann hjá fyrirtæki í eigu forstjórans eftir afturköllun leyfis
EyjanFastir pennar
Fyrir 12 klukkutímum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst
Pressan
Í gær

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin