fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026

Barnakarlar og -kerlingar á þingi

Svarthöfði
Laugardaginn 18. maí 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Landnámu segir:

„Ölvir barnakarl hét maður ágætur í Noregi; hann var víkingur mikill. Hann lét eigi henda börn á spjótaoddum, sem þá var víkingum títt; því var hann barnakarl kallaður.“

Margir barnakarlar sitja nú á hinu háa Alþingi, í Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Nokkrar barnakerlingar líka og hæst bylur þar í Ingu Sæland eins og henni einni er lagið. Í vikunni var kosið um ný lög um fóstureyðingar. Ekki skipaði sjálfur barnamálaráðherrann, Ásmundur Einar, sér í lið með hinum barnakörlunum þó.

Gífuryrði barnakarlanna og -kerlinganna voru mikil þegar þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Lýstu þeir yfir megnri andúð á frumvarpinu. Sumir þeirra hafa látið gamminn geisa á þingi undanfarna daga. Sæland sagði til dæmis að verið væri að taka ákvörðun um að drepa börn í móðurkviði.

Svarthöfði tók vel eftir þessu í atkvæðagreiðslunni og sá drápsfýsnina í augum þeirra sem sögðu glaðhlakkalega já við frumvarpinu. Fólk sem veit greinilega ekkert betra en að kasta börnum á spjótsodda, hlægja og skála í miði á eftir. Fátt veitir þeim meiri gleði en að drepa börn. Sjóða þau í potti eins og skessan Grýla og rífa þau í sig með brjóski og beinum.

Svarthöfði hjó einnig eftir því að barnakarlarnir og barnakerlingarnar hafa ekki alltaf verið barnanna best þegar kemur að málefnum barna. Mestmegnis eru þetta eldri menn og í íhaldssamari kantinum. Ekki rekur Svarthöfða minni til þess að þeir hafi barist fyrir málefnum barna fyrr, beitt sér fyrir auknum fjármunum til barnabóta eða fjárstuðningi við barnafjölskyldur.

Þarna eru til dæmis þingmenn eins og Ólafur Ísleifsson og Ásmundur Friðriksson sem hafa verið ómyrkir í máli þegar kemur að málefnum hælisleitenda. Gildir þá einu hvort þeir eigi börn eða ekki, sem rifin eru upp um miðjar nætur og send með næturflugi út í óvissuna. Þarna er einnig Brynjar Níelsson lögmaður sem meðal annars varði Ágúst Magnússon, einn alræmdasta barnaníðing Íslandssögunnar. Og Sigríður Á. Andersen sem gekk svo vasklega fram í að halda upplýsingum um uppreista æru leyndum fyrir þolendum tveggja barnaníðinga. Svo vasklega að ríkisstjórn Íslands sprakk í kjölfarið.

Siðferðispostularnir eru fleiri innan raða barnakarla og -kerlinga sem ganga nú fram með sverð og skjöld. Varla þarf að minnast á Klausturdónana. Bergþór Ólason sem fann skrokkinn sem „typpið á honum dugði í“ og Gunnar Braga Sveinsson sem vildi hjóla í „helvítis tíkina.“

En í þessari viku gátu barnakarlarnir og barnakerlingarnar barið sér á brjóst, klappað sér á bakið og slegið sig til riddara sem helstu málsvara góðs siðgæðis og umhyggju fyrir börnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“
Pressan
Í gær

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann