fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
433Sport

Alfreð biður fólk um að bera virðingu fyrir vali Arons Einars: Þetta er ástæðan

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. mars 2019 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Snævar Jónssons skrifar frá Peralada á Spáni:

Íslenska landsliðið æfði í annað sinn í Katalóníu nú í morgun en leikmenn liðsins komu saman í gær. Undirbúningur fyrir undankeppni EM er í fullum gangi.

Liðið æfir í Peralada á Spáni í dag og á morgun og heldur síðan til Andorra snemma á fimmtudag, þar er leikur gegn heimamönnum á föstudag.

Alfreð Finnbogason er einn af þeim sem er í hópnum, hann er mættur aftur eftir meiðsli. Alfreð snéi til baka um liðna helgi með Augsburg og er mættur í verkefni landsliðsins.

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði landsliðsins gekk í raðir Al-Arabi í Katar í dag. Þar gerir hann tveggja ára samning sem tekur gildi í sumar.

Þegar blaðamaður spurði hvort leikmenn landsliðsins væru byrjaðir að skjóta á Aron, fyrir að elta seðlana, sagði Alfreð. ,,Við erum ekki byrjaðir á því,“ sagði framherjinn knái sem hefur mikinn skilning á ákvörðun Arons.

Aron hefur spilað í ellefu ár á Englandi og níu ár af þeim hafa verið í næst efstu deild, þar er álagið gríðarlegt.

,,Það eru allir ánægðir fyrir hans hönd. Hann hefur unnið mikið fyrir öllu, sem hann hefur afrekað. Þegar menn eldast, menn eldast misvel og geta spilað mis lengi. Á þessum tímapunkti, finnst honum kannski aðrir hlutir skipta máli, frekar en að spila í sterkustu deildunum. Hann er þá örugglega að hugsa um að lengja sinn feril, maður á alltaf að bera virðingu fyrir valkosti fólk, maður veit ekki alltaf hvað stendur bakvið þetta. Hann á þetta skilið.“

,,Hann er í toppmálum þarna, góður hiti. Hann hefur gott af því, mýkja hann upp. Vonandi nýtist hann landsliðinu í nokkur ár í viðbót.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Besta deildin: Tvö rauð spjöld á loft er FH vann á Akranesi – Vestri komið með sex stig

Besta deildin: Tvö rauð spjöld á loft er FH vann á Akranesi – Vestri komið með sex stig
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sjáðu ótrúlegar myndir: Fann óvenjulegt vopn og hótaði öllu illu – Á von á harðri refsingu

Sjáðu ótrúlegar myndir: Fann óvenjulegt vopn og hótaði öllu illu – Á von á harðri refsingu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Pochettino brjálaður eftir leikinn: Eru að skemma enskan fótbolta – ,,Ótrúlegt og fáránlegt“

Pochettino brjálaður eftir leikinn: Eru að skemma enskan fótbolta – ,,Ótrúlegt og fáránlegt“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“
433Sport
Í gær

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar

Besta deild kvenna: Sandra skoraði fernu – Svakaleg endurkoma Stjörnunnar
433Sport
Í gær

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni

Varane þakkar stuðninginn og getur ekki beðið eftir endurkomunni