fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Grunur um hryðjuverk í Osló – Einn handtekinn

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 18. janúar 2019 14:03

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norska lögreglan rannsakar nú morðtilræði sem var framið í matvöruverslun í Osló í gær. Þar var kona stungin þar sem hún stóð við afgreiðslukassa og var að greiða fyrir vörur. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins en það er karlmaður á þrítugsaldri. Hann er með rússneskt ríkisfang og kom til Noregs frá Svíþjóð fyrr um daginn.

Árásin átti sér stað í verslun Kiwi í Møllergata. Allt bendir til að tilviljun hafi ráðið því að þessi kona var stungin. Hún var strax flutt á sjúkrahús þar sem hún liggur enn en hún er í lífshættu. Norskir fjölmiðlar segja að maðurinn hafi sagt að hann vildi drepa fleiri. Norska ríkisútvarpið segir að maðurinn sé múslimi.

Hann var handtekinn skammt frá vettvangi skömmu eftir að lögreglunni var tilkynnt um málið.

Í áhættumatsskýrslum norsku leyniþjónustunnar sem og annarra evrópskra leyniþjónusta hefur undanfarið verið bent á hættuna sem stafar af einstaklingum sem munu hugsanlega fremja hryðjuverk sem þessi í Evrópu. Þeir eru þá einir að verki og ráðast á óbreytta borgara með það að markmiði að drepa þá.

Leyniþjónustan tók við rannsókn málsins í dag af lögreglunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf
Pressan
Í gær

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir
Pressan
Í gær

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt
Pressan
Í gær

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist