fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Hallgerður gagnrýnir ofnotkun hundaeigenda á ferðabúrum: „Þetta er dapurleg lausn, byggð á algerum misskilningi“

Tómas Valgeirsson
Þriðjudaginn 11. desember 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Sá vondi siður hefur því miður mótast á Íslandi undanfarin ár að geyma hunda í ferðabúrum,“ segir Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Í skoðanapistli Fréttablaðsins í dag gagnrýnir hún hundaeigendur sem láta dýrin að verja meirihluta sólarhringsins í litlum búrum. Þetta er hvorki heimilt eigendum né í samræmi við dýravelmeðferð, að hennar sögn.

Hallgerður segir þessi tilfelli vera of algeng og vísar hún í nýja reglugerð um velferð gæludýra sem kom út árið 2016. „Í reglugerðinni er margt til bóta fyrir gæludýr og verður sérstaklega að benda á leyfilega stærð á búri sem heimilt er að halda hunda í til daglegrar vistarveru. Mikill munur er á þeim og á ferðabúrum,“ segir Hallgerður.

Hún segir það oft koma fyrir að dýr séu lokuð í slíkum búrum yfir nóttina og svo aftur yfir daginn á meðan eigandinn er að vinna. Þykir henni það miður og bætir hún við að yfirleitt sé sú ástæða gefin að þeir séu órólegir eða erfiðir, eða af því að þeim finnist sjálfum þeir bara vera öruggir í búrunum sínum.

„Þetta er dapurleg lausn, byggð á algerum misskilningi eða á tilhneigingu okkar mannanna til að finna auðvelda leið fyrir okkur sjálf,“ segir hún.

Hegðunarvandi óhjákvæmilegur auk vansældar

Að sögn Hallgerðar veldur þetta því að hundaeigandinn losar sig þá fyrirhöfn og vinnu að umhverfisþjálfa hundinn og getur þetta valdið hegðunarvanda. „Hundur sem er ekki umhverfisþjálfaður er í raun vanræktur. Hann verður vansæll,“ segir hún og tekur fram að fólk sem heldur hunda með ábyrgum hætti viti að það þarf að aðlaga þá að lífinu með manninum.

„Við kennum hundinum að halda ró sinni í ýmsum aðstæðum, dvelja í ferðabúrum á ferðalögum, sinnum honum sem vini og félaga og sjáum honum fyrir nægilegri hreyfingu og atlæti. Hundar sem eru umhverfisvandir kunna sig og eru öllum til ánægju.“

Hallgerður tekur fram að notkun ferðabúra til daglegrar vistarveru sé bönnuð í nágrannalöndum vegna þess að hún þykir vera andstæð velferð hundanna. Einnig vill hún meina að áður hafi verið rétti tíminn til þess að leiðrétta þetta á Íslandi með nýju reglugerðinni. Hún vísar í 13. grein um flutninga sem segir að búrið skuli „vera það rúmt að gæludýrið geti staðið í því, snúið sér við, legið og hvílst,“ en að þetta séu ekki viðmið fyrir daglegar vistarverur.

„Margir hafa opin ferðabúr á heimilum sem hundar fá að velja sjálfir að nota og búrinu er ekki lokað á eftir þeim, þá er það eins og hvert annað ból sem hundurinn kýs að nota og getur stigið út úr, en þegar við erum að loka á eftir hundunum þá gildir önnur regla,“ segir Hallgerður. „Það er ekki góð meðferð á dýrum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt