fbpx
Mánudagur 08.júní 2026

Ekki hátt risið á Norðlendingum núna

Svarthöfði
Laugardaginn 8. desember 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði er glaður að sjá Norðurland allt grafast í fönn á meðan aðeins skæðadrífa er hér fyrir sunnan. Nú sér Svarthöfði fréttamyndir frá „höfuðstaðnum“ Akureyri á fésbókinni og gleðja þær mjög. Er engu líkara en að Norðurlandið sé að breytast í plánetuna Hoth. Svarthöfði hefur komið þangað. Það er ekki góður staður.

Þannig er mál með vexti að Svarthöfði er ættaður að norðan. Ekki er Svarthöfði stoltur af því. Svarthöfði á því marga fésbókarvini sem búsettir eru á Akureyri og öðrum krummaskuðum Norðurlands.

Fyrir norðan er smáborgarahátturinn og minnimáttarkenndin ríkjandi. Öfund og biturleiki út í höfuðborgina sérstaklega en einnig Suðurlandið allt, þar sem er hagsæld og almennt blítt veðurfar.

Það bregst ekki að í hvert einasta skipti sem hitamælirinn sýnir örlítið hærra stig fyrir norðan en hér sunnan, þá rignir yfir mann skotunum frá Norðlendingum. Þeir hlaupa út til að taka myndir, bæði af sólinni og sjálfum sér á stuttermabolum. „Hvernig er veðrið hjá ykkur fyrir sunnan?“ stendur gjarnan með. Hæðnin leynir sér ekki.

Þetta er ekki raunin þegar veðrið er betra fyrir sunnan. Sem er nota bene um það bil 95 prósent ársins. Ef við Sunnlendingar ættum að vera að monta okkur af veðrinu við þessi grey fyrir norðan þá hefðum við ekki tíma til þess að gera neitt annað. Það er heldur ekki í okkar beinum að stríða minni máttar.

Nú er ekki hátt risið á Norðlendingum. Væntanlega fara um það bil tuttugu prósent af útsvarinu þeirra í snjómokstur næstu daga. Hér fyrir sunnan ser pínu kalt en allar götur greiðar og samfélagið gengur smurt eins og ávallt. Það er samt óskhyggja að telja sér trú um það að Norðlendingar læri nokkuð af þessu. Sjáiði til. Næst þegar slembilukka leikur við Norðanmenn og sól skín þar í heiði, munu þeir byrja að monta sig og senda myndir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“
Pressan
Í gær

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann