fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Fréttir

Maðurinn á Selfossi sagði að hann „væri bara morðingi“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. nóvember 2018 18:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna bruna á Kirkjuvegi á Selfossi í október hringdi sjálfur í Neyðarlínuna. Tvær manneskjur létust í brunanum. Þegar lögregla kom á vettvang mun hann hafa sagt að hann „væri bara morðingi“. Frá þessu er greint á RÚV sem vitnar í gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum sem birtur var í dag. Maðurinn sem var húsráðandi var handtekinn ásamt konu og þau úrskurðuð í gæsluvarðhald. Konunni var síðar sleppt en maðurinn situr enn í haldi.

Í úrskurðinum segir:

Hafi hann verið handtekinn á vettvangi og færður á lögreglustöðina á […] og vistaður í fangaklefa. Hafi kærði, að eigin frumkvæði, á vettvangi greint lögreglu frá því að hann hafi kveikt í og að hann væri bara morðingi. Þá hafi Y haft á orði við lögreglu að kærði hafi kveikt í húsinu.

Þá segir einnig í dómnum:

„Við fyrri yfirheyrsluna hafi kærði greint frá því að hann myndi eftir að hafa kveikt eld með kveikjara í pappa á lærunum á sjálfum sér í stofu á neðri hæð hússins. Buxur hans hafi brunnið eitthvað og hann fengið brunasár. Hafi hann líklega hent logandi pappanum á gólfið. Þá greindi kærði frá vitneskju sinni um að fólk hefði verið statt á efri hæð hússins. Við skýrslugjöf hjá lögreglu öðru sinni, þ.e. miðvikudaginn 7. nóvember sl., hafi kærði neitað að tjá sig um sakarefnið og kosið að nýta rétt sinn til að svara ekki einstökum spurningum sem fyrir hann voru lagðar.“

Þá segir konan sem var sleppt að hún hafi komið í húsið skömmu áður en húsráðandi hafi kveikt í. Var hún sjálf gestkomandi. Þar sagðist hún hafa séð ákærða kveikja í pizzakössum sem hann hélt á í fangi sér. Voru buxur mannsins illa farnar og er eitt sönnungargagn lögreglu og maðurinn með brunasár á lærum. Kvaðst konan hafa hellt bjór yfir kassana til að slökkva eldinn. Þá hafi kona sem lést í brunanum komið niður og rifist við húsráðanda en síðan farið uppá efri hæð hússins. Eftir það hafi húsráðandi kveikt í gardínum við sófa í stofunni.

Í dómnum segir:

„Að mati lögreglustjóra sé sterkur rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um að hafa valdið eldsvoðanum í íbúðarhúsinu að […]. Það mat byggist á því að kærði hafi að eigin frumkvæði getið þess sjálfur á vettvangi brunans að hann hefði kveikt í húsinu. Þá hafi hann við yfirheyrslu hjá lögreglu greint frá því að hafa notað kveikjara við að kveikja í pappakassa í stofu á neðri hæð hússins skömmu áður en það varð alelda. Komi brunasár á lærum hans og ummerki á buxum heim og saman við þennan framburð hans sem og framburð Y. Eins og áður greinir hafi upptök eldsins verið af völdum íkveikju í og við sófa í stofu á jarðhæð vestan megin í húsinu. Þá bendi bráðabirgðaniðurstöður úr krufningu á líkum hinna látnu til þess að þau hafi verið á lífi eftir að eldur tók að loga í húsinu og látist úr kolmónoxíðeitrun af völdum brunans.“

Maðurinn viðurkenndi þann 1. Nóvember að hafa kveikt í kössunum. Þá sagði hann einnig að honum hefði verið kunnugt um að tvær manneskjur hafi verið á efri hæð hússins og aðspurður kvað hann einu leiðina fyrir þau út úr húsinu hafi verið niður stiga og um þakglugga í geymslu á efri hæðinni. Lýsti kærði því að eldur hafi verið í gardínum og lofti í stofunni. Eldurinn hafi magnast hratt og kvaðst kærði hafa farið strax út úr húsinu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Í gær

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári