fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Spennandi hádegisfyrirlestur: Áhrif spænsku veikinnar á barnshafandi konur á Íslandi árið 1918

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 16. október 2018 08:30

örn og hjúkrunarfólk í spænsku veikinni í Reykjavík. Myndin er sennilega tekin í Barnaskólanum sem var breytt í bráðabirgðasjúkrahús. Sjúkraflutningar hófust í Barnaskólann 11. nóvember 1918. Alls voru 107 sjúklingar fluttir þangað til aðhlynningar og af þeim létust 35 (14). Ljósmyndari ókunnur. Myndin er fengin frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag flytja Erla Dóris Halldórsdóttir og Magnús Gottfreðsson hádegisfyrirlesturinn „Áhrif spænsku veikinnar á barnshafandi konur á Íslandi árið 1918.“ 

Fyrirlesturinn hefst klukkan 12:05 og fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Þetta er þriðja erindi þessa haustmisseris í röð fyrirlestra sem Sagnfræðingafélag Íslands skipuleggur í samvinnu við Þjóðminjasafnið, en þema haustsins er að þessu sinni hörmungar.

„Fyrri hluta ársins var heilsufar í betra meðallagi hér í bænum, inflúensufarsótt sú, sem hingað barst í lok októbermánaðar, gjörbreytti þessu og verður að telja ár þetta hörmulegasta og sorglegasta árið í heilsufarstilliti, bæði vegna þess hversu margir veiktust og ennfremur af hinum mikla og óvanalega manndauða.“ Þetta skráði Jón Hj. Sigurðsson læknir í Reykjavík í ársskýrslu sinni til landlæknis í lok árs 1918. Hjá Jóni kom ennfremur fram að fjöldi gravidra kvenna leystist höfn og fósturlát af völdum veikinnar voru algeng. Mikill fjöldi fæðandi kvenna beið bana.

Sá hópur sem hefur litla umfjöllun fengið í frásögnum af spænsku veikinni eru barnshafandi konur en dánartíðni þeirra var allt að 37% í veikinni. Í fyrirlestrinum verður dregin upp mynd af þeim konum sem misstu fóstur í veikinni, þeim konum sem fæddu fársjúkar, þeim sem fæddu minna veikar og af öðrum sem dóu áður en þær náðu að fæða. Leitað verður svara við spurningunni hver áhrif spænsku veikinnar voru á barnshafandi konur og litið bæði til Íslands og hinna Norðurlandanna í því skyni. Af hverju veikin lagðist þyngra á konur á fyrri hluta meðgöngu en í lok meðgöngunnar? Þær sem voru komnar að fæðingu urðu minna veikar en hinar, sem styttra voru gengnar.

Erla Dóris Halldórsdóttir er sagnfræðingur og hjúkrunarfræðingur að mennt. Hún er með sérmenntun í gjörgæsluhjúkrun frá Haukeland sjúkrahúsinu í Bergen í Noregi. Hún hefur einnig lokið BA- og MA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Í október 2016 varði hún doktorsritgerð í sagnfræði, Fæðingarhjálp á Íslandi 1760-1880 við Sagnfræði- og heimspekideild HÍ. Rannsóknir Erlu Dórisar í sagnfræði hafa einkum verið á sviði heilbrigðissögu.

Magnús Gottfreðsson er smitsjúkdómalæknir og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Hann lauk embættisprófi frá læknadeild HÍ árið 1991, doktorsprófi frá sömu deild 1999 og stundaði sérnám í lyflækningum og smitsjúkdómum við Duke háskóla í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum 1993-1999. Hann hefur stundað rannsóknir á alvarlegum sýkingum, þ.á.m. inflúensu og heilahimnubólgu en jafnframt leitast við að nýta sagnfræðileg gögn til að varpa ljósi á faraldra fyrri alda hérlendis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd