fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Pressan

Rússneska þingið hefur boðið sænskum stjórnmálaflokki á ráðstefnu í Rússland – Telja að Rússar ætli að blanda sér í sænsku þingkosningarnar

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 5. júní 2018 07:13

Frá Moskvu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Svíar ganga að kjörborðinu þann 14. september næstkomandi og kjósa til þings munu erlend ríki reyna að hafa áhrif á úrslitin. Þetta sögðu sænsk yfirvöld í desember á síðasta ári. Öryggislögreglan, Säpo, tók undir þetta í ársskýrslu sinni sem var birt í febrúar. Í henni var sérstaklega tekið fram að Rússar muni reyna að hafa áhrif á kosningarnar.

Það hefur því að vonum ekki farið framhjá sænskum fjölmiðlum að rússneska þingið, Dúman, hefur nú boðið fulltrúum Alternative for Sverige (AFS) á ráðstefnu í Rússlandi. AFS er nýr flokkur og eins og nafnið gefur til kynna er flokkurinn ekki fjarri þýska flokknum Alternative für Deutschland sem er eins og AFS þjóðernissinnaður flokkur sem er andsnúinn innflytjendum og flóttamönnum.

AFS var stofnaður í desember af Gustav Kasselstrand sem var rekinn úr Svíþjóðardemókrötunum. Margir fyrrum meðlimir Svíþjóðardemókratanna hafa gengið í raðir AFS en stefna flokksins í málefnum útlendinga er mun róttækari en stefna Svíþjóðardemókratanna sem hafa oft verið gagnrýndir fyrir harða stefnu sína.

Expressen segir að yfirskrift ráðstefnunnar í Rússlandi sé framtíð þingræðisins og þróun. Meðal þeirra evrópsku flokka sem er boðið að senda fulltrúa eru Front National, Lega Nord, Alternative für Deutschland og AFS en allt eru þetta hægrisinnaðir þjóðernisflokkar. Rúmlega 500 manns taka þátt í ráðstefnunni.

Sænska ríkisútvarpið hefur eftir Gustav Kasselstrand að hann telji að Svíar eigi að bæta samskipti sín við Rússland. Þegar hann var spurður um hættuna á að hann og félagar hans verði fyrir rússneskum áhrifum á ráðstefnunni svaraði hann:

„Þetta bara kjaftæði. Hreinn hugarburður.“

Í samtali við Expressen sagði hann að ráðstefnan væri ópólitísk.

„En markmið okkar er að mynda tengsl við þjóðernisflokka frá allri Evrópu. Svíþjóðardemókratarnir hafa vanrækt þessa flokka árum saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Maria lagði á ævintýralegan flótta til að geta tekið við friðarverðlaunum Nóbels

Maria lagði á ævintýralegan flótta til að geta tekið við friðarverðlaunum Nóbels
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tesla olli eldsvoða og sex manna fjölskylda missti allt – Telur að kraftaverk hafi bjargað lífi þeirra

Tesla olli eldsvoða og sex manna fjölskylda missti allt – Telur að kraftaverk hafi bjargað lífi þeirra
Pressan
Fyrir 6 dögum

Þeir sem heimsækja Bandaríkin þurfi að sýna samfélagsmiðlasögu sína fimm ár aftur í tímann

Þeir sem heimsækja Bandaríkin þurfi að sýna samfélagsmiðlasögu sína fimm ár aftur í tímann
Pressan
Fyrir 6 dögum

Faðir ákærður eftir að 13 ára dóttir hans ók inn á skrifstofu – „Þetta leit út eins og sprenging“

Faðir ákærður eftir að 13 ára dóttir hans ók inn á skrifstofu – „Þetta leit út eins og sprenging“