fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Fengu filmur í trollið: Vita hvaða kvikmynd var veidd uppúr Faxaflóa

Sovésk barna- og unglingakvikmynd

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 18. júlí 2016 14:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í byrjun mánaðarins fengu skipverjar á humarbátnum Fróða ÁR 38 gamlar kvikmyndarúllur í botnvörpuna þar sem þeir voru að veiðum í Faxaflóa um 20 sjómílur suðaustur af Snæfellsjökli. Þeir á Fróða afhentu Kvikmyndasafni Íslands filmurnar. Þar voru þær þurrkaðar og síðan skoðaðar. Kenningar voru á lofti um að hér gætu hugsanlega verið gamlar kvikmyndir úr seinni heimsstyrjöldinni. Fjallaði Rúv um málið.

Í ljós kom að hér var á ferðinni svarthvít kvikmynd. Nánari rannsóknir leiddu svo í ljós að þetta var rússensk eða sovésk mynd. Í gær birti Kvikmyndasafn Íslands svo litla kvikmynd á Facebook-síðu sinni um það hvers starfsmenn þess hefðu orðið vísari við að skoða þessa gömlu filmu sem greinlega hafði legið á hafsbotni í langan tíma.

Filmurnar skoðaðar
Filmurnar skoðaðar

„Nikolai Veligzhagin, vinur minn og kvikmyndagerðarmaður, segir þetta vera barna- og unglingakvikmynd um lögreglumanninn Aniskin í kvikmyndinni „Derevensky detektiv“ sem gæti útlagst sem Sveitalögreglumaðurinn. Hann nefnir aðalleikarana þá Mikhail Zharov og Roman Tkachuk. Myndin var tekin 1969 í sérstöku kvikmyndaveri barna- og unglingamynda, Gorky kvikmyndaverinu í Moskvu,“ segir Haukur Hauksson fararstjóri og fyrrum fréttaritari RUV í Moskvu.

Hann skoðaði kvikmynd Kvikmyndasafns Íslands um kvikmyndina dularfullu á hafsbotni fyrr í dag, vakti athygli á henni meðal rússneskra vina sinna á Facebook þar sem Nikolai Veligzhagin bar strax kennsl á hana út frá þeim myndarömmum sem Kvikmyndasafnið gat sýnt.

Samkvæmt rússnesku wikipediu fjallar kvikmyndin „Деревенский детектив“ um áskoranir sem sveitalögreglumaðurinn Aniskin þarf að mæta í störfum sínum. Harmóniku er stolið í þorpinu og það er glæpur aldarinnar enda slíkt hljóðfæri afar verðmætt fágæti í sveitinni og talið til kýrverðs. Myndin segir síðan söguna af því hvernig hinn djarfi Aniskin sveitalögreglumaður flettir ofan af glæpamönnunum sem stálu harmónikunni.

Aðalhlutverkið sem Fedor Aniskin lögreglumaður, var leikið af Mikhail Zharov. Hann var um áratugaskeið ein skærasta stjarna leikhúsanna og kvikmyndanna á gullaldarárum Sovétríkjanna, listamaður alþýðu Sovétríkjanna 1949, handhafi þriggja Stalínverðlauna og dyggur félagi í Kommúnistaflokknum. Myndarammar sem sýna andlit hans koma einmitt fram í því efni sem Kvikmyndasafn Íslands hefur birt. Mikhail Zharov lést 1981 í hárri elli.

Haukur Hauksson segir einnig að að Mikhail Antonov, fréttaritari rússneksa ríkissjónvarpsins í Evrópu staðfesti nú að þetta sé kvikmyndin. Einnig starfsmaður rússneska ríkiskvikmyndasafnsins sem heitir Sergey Eisenschtein. Það virðist því enginn vafi leika á því að þetta er kvikmyndin um ævintýri sveitalöggunnar Aniskin frá því 1969.

Leiða má líkum að því að kvikmyndinni dularfullu hafi verið hent í sjóinn einhvern tímann eftir 1970 eins og hverju öðru rusli. Það gæti hafa verið úr sovésku skipi á árum kaldastríðsins eða úr rússnesku skipi eftir hrun Sovétríkjanna. Skip undir Sovétfánanum sigldu oft norðurleiðina til og frá Norðusvestur Rússlandi og þá um Faxaflóa og framhjá Snæfellsnesi á árum kalda stríðsins. Þá voru enda oft í gildi viðskiptasamningar milli Íslands og Sovétríkjanna á þeim árum þar sem Sovétríkin keyptu sjávarafurðir og fleira af Íslendingum en við fengum olíu og annað í staðinn. Síðar eftir endalok Sovétríkjanna og lok kalda stríðsins fóru rússneskir togarar að venja komur sínar til Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Íslenskir fjölmiðlar séu í hættu og RÚV hafi ekkert forskot

Íslenskir fjölmiðlar séu í hættu og RÚV hafi ekkert forskot
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Í gær

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna
Fréttir
Í gær

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni