fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Sanna Magdalena: „Við erum til í þetta“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 27. maí 2018 10:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum til í þetta“ sagði Sanna Magdalena Mörtudóttir, nýr borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í samtali við DV í nótt. En hún sló met Davíðs Oddssonar, frá árinu 1984, og er yngsti borgarfulltrúi sögunnar í Reykjavík, aðeins 26 ára gömul.

„Ég er enn þá að fatta að þetta sé að gerast en það er mjög jákvætt. Ég hef alltaf stokkið ofan í djúpu laugina og læt ekkert hræða mig.“

Þegar kom að næstu skrefum og mögulegu meirihlutasamstarfi við aðra flokka sagði Sanna að Sósíalistaflokkurinn væri grasrótarflokkur og þetta samtal yrði að vera unnið á því stigi áður en næstu skref yrðu ákveðin.

Þið eruð nú ekkert langt frá til dæmis Vinstri Grænum og Pírötum varðandi stór málefni?

„En við erum mjög róttæk og viljum breytingar strax. Fólkið getur ekki beðið lengur eftir bættum kjörum.“

Eins og flestir vita unnu Sósíalistar góðan sigur í Reykjavík með 6,37 prósentum og einum fulltrúa. Fékk flokkurinn því meira fylgi en til dæmis Miðflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Flokkur fólksins og Vinstri Grænir. Allt flokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Eyjólfur Ármannsson: Þurfum meiri strandsiglingar – fellum bara niður ETS gjöldin

Eyjólfur Ármannsson: Þurfum meiri strandsiglingar – fellum bara niður ETS gjöldin
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun