fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Eyjan

Sigmundur Davíð: „Óttinn reyndist réttur“

Ari Brynjólfsson
Sunnudaginn 12. mars 2017 15:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra segir áætlun vogunarsjóðanna um að fá nýja ríkisstjórn og betra verð hafa gengið upp. Sigmundur segir löngu tímabært að aflétta höftum af almenningi og lækka svo vexti. Segir hann að aðgerðirnar í dag sanna endanlega að aðgerðir hans ríkisstjórnar á síðasta kjörtímabili til að endurreisa efnahagslíf landsins og aflétta höftum hafi heppnast fullkomlega:

En í stað þess að klára planið eins og lagt var upp með og gera þetta að sigurdegi virðist stjórnvöld ætla að nota tækifærið til að leysa vogunarsjóðina út með gjöfum, alla á einu bretti.

Óttinn reyndist réttur. Það stendur til að verðlauna hrægammana sem vildu ekki spila með (í útboðinu í fyrra) og ákváðu þess í stað að beita áróðri og undirróðri til að hafa áhrif á íslensk stjórnmál,

segir Sigmundur. Stjórnvöld á þeim tíma hafi verið búin að gera mönnum ljóst að þeir sem tækju ekki þátt sætu eftir og gætu setið fastir á lágum eða engum vöxtum í mörg ár. Fyrir vikið voru þeir sem trúðu því að stjórnvöldum væri alvara reiðubúnir til að borga 190 krónur fyrir hverja evru þegar skráð gengi var um 139 krónur. Í dag var svo greint frá því að kröfuhafar fá að kaupa evruna á 137,5 krónar:

Sá sem hefði fengið 100 milljón evrur með því að taka þátt í útboðinu fær nú rúmlega 138 milljón evrur. Það er hægt að kaupa margar auglýsingar og ráða marga PR-menn fyrir slíkan mun.

Planið gekk upp hjá vogunarsjóðunum. Þeir fengu kosningar, nýja ríkisstjórn, nýja stefnu og nýtt verð. „Special price for you my friend“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi