fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Eyjan

Svanfríður óttast öfgar og þjóðernispopúlisma: „Samfylkingin átti að verða breytingarafl“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 9. mars 2017 19:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svanfríður Inga Jónasdóttir. Hún var Alþingismaður Norðurlands eystra frá 1995 til 2003 fyrir Þjóðvaka og síðar Samfylkinguna. Mynd/Sigtryggur Ari

Svanfríður Inga Jónasdóttir, fyrrverandi þingmaður og fyrsta konan sem varð bæjarstjóri á Dalvík, segir gengi Samfylkingarinnar í síðustu kosningum áhyggjuefni og vonar hún að menn beri gæfu til að stilla saman strengi. Í viðtali við Akureyri Vikublað, sem lesa má í heild sinni hér, segir Svanfríður að hún óttist öfgar og þjóðernispopúlisma í stjórnmálum.

Einhverra hluta vegna hefur hreyfing jafnaðarmanna klofnað látlaust alla síðustu öld, þetta er ein klofningarsaga, því miður. Vonandi bera menn gæfu til að stilla saman strengi. Ég óttast þær öfgar og þjóðernispopúlisma sem nú virðist vaða uppi í pólitíkinni, ekki síst á alþjóðavísu. Ég vona að við sjáum það breytast og held að veröldin þurfi á því að halda að vera með sterka hreyfingu jafnaðarmanna,

segir Svanfríður. Beðin um skýringar á slæmu gengi síns gamla flokks Samfylkingarinnar í síðstu kosningum segir Svanfríður:

Samfylkingin átti að verða breytingarafl sem flokkurinn náði svo ekki að sýna þegar hann var kominn í ríkisstjórn, en þá voru aðstæður líka fordæmalausar. Þar með glataðist það eina sem stjórnmálaflokkur þarf að hafa – traustið. Það mun taka tíma að vinna það til baka. Ég er samt alltaf bjartsýn. Vonandi kemur að því að menn átta sig á því hvað sterkur jafnaðarmannaflokkur er mikil nauðsyn og láti af persónulegum hégóma og valdastreitu.

Smelltu hér til að lesa viðtalið við Svanfríði í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum ekki að boða bara eitthvað eins og síðasta ríkisstjórn – uppbyggingin er áþreifanleg

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum ekki að boða bara eitthvað eins og síðasta ríkisstjórn – uppbyggingin er áþreifanleg
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór Ingólfsson: Átakið ekki bara í Reykjavík – uppbygging fram undan á landsbyggðinni

Ragnar Þór Ingólfsson: Átakið ekki bara í Reykjavík – uppbygging fram undan á landsbyggðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hafnarfjörður: Meirihlutinn kolfallinn – Viðreisn með pálmann í höndunum

Hafnarfjörður: Meirihlutinn kolfallinn – Viðreisn með pálmann í höndunum