130 einstaklingar sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi í júní. Heildarfjöldi umsókna á fyrstu sex mánuðum ársins er 500 en það eru um 80% fleiri umsóknir en bárust á fyrri helmingi síðasta árs, 275. 130 einstaklingar sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi í júní. Fjölgunin samanborið við árið 2016, bendir því enn til þess að umsóknir um alþjóðlega vernd á árinu geti orðið allt að 2000 talsins, jafnvel fleiri. Þetta kemur fram í tölum Útlendingastofnunar.
Umsækjendur í júní voru af 19 þjóðernum, flestir komu frá Albaníu, 44, og Georgíu, 40. 42% umsækjenda komu frá ríkjum Balkanskagans. 78% umsækjenda voru karlkyns og 22% kvenkyns. 85% umsækjenda voru fullorðnir og 15% yngri en 18 ára. Þrír umsækjendur kváðust vera fylgdarlaus ungmenni.
44 drógu umsókn til baka eða hurfu
Niðurstaða fékkst í 93 mál í júnímánuði. 33 umsóknir voru teknar til efnislegrar meðferðar en þar af voru 9 mál afgreidd í forgangsmeðferð. 16 mál voru afgreidd með ákvörðun um endursendingu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og 44 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu.
24 þeirra 33 mála sem tekin voru til efnislegrar meðferðar lauk með ákvörðun um synjun og níu með ákvörðun um veitingu verndar eða dvalarleyfis af mannúðarástæðum.
550 einstaklingar í þjónustu
Samkvæmt tölum Útlendingastofnunar njóta 550 einstaklingar þjónustu í verndarkerfinu á Íslandi um þessar mundir, þar af eru um 250 manns í þjónustu hjá félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðarbæjar og Reykjanesbæjar, á grundvelli þjónustusamninga við Útlendingastofnun. Móttöku- og þjónustuteymi Útlendingastofnunar veita um 300 einstaklingum þjónustu í búsetuúrræðum stofnunarinnar.
Lögreglan flutti 42 úr landi í júní
Stoðdeild Ríkislögreglustjóra flutti 42 einstaklinga úr landi í júní. 25 einstaklingar yfirgáfu landið sjálfviljugir með stuðningi Útlendingastofnunar í mánuðinum og 13 með stuðningi Alþjóða fólksflutningastofnunarinnar, IOM.
Málsmeðferðartími umsókna um vernd styttist milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Mest styttist málsmeðferðartími umsókna sem afgreiddar voru í forgangsmeðferð, úr 98 dögum að meðaltali í 63 daga.
Meðalmálsmeðferðartími allra afgreiddra umsókna um vernd á öðrum ársfjórðungi 2017 var 116 dagar, 162 mál. Að meðaltali tók 179 daga að afgreiða umsókn um vernd í hefðbundinni efnismeðferð, 61 mál, 63 daga í forgangsmeðferð, 22 mál, og 82 daga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, 79 mál.