fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

United horfir til Real Madrid og klárir í slaginn ef hann er til sölu

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 12. maí 2026 09:00

Aurelien Tchouameni. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur samkvæmt enskum miðlum áhuga á að reyna að fá franska miðjumanninn Aurélien Tchouaméni til félagsins í sumar ef Real Madrid ákveður að selja hann.

Tchouaméni, sem er 26 ára gamall, hefur verið mikilvægur leikmaður hjá spænska stórveldinu síðan hann kom frá Mónakó árið 2022. Þrátt fyrir það hafa verið uppi vangaveltur um framtíð hans hjá félaginu vegna harðrar samkeppni á miðsvæðinu.

Samkvæmt Manchester Evening News fylgist Manchester United grannt með stöðu mála og er tilbúið að gera tilraun til að lokka franska landsliðsmanninn á Old Trafford ef Real Madrid opnar á sölu.

United vill styrkja miðjuna fyrir næsta tímabil og er talið að félagið ætli að fjárfesta verulega í nýjum leikmönnum í sumar. Tchouaméni hefur lengi verið talinn einn besti varnarsinnaði miðjumaður Evrópu og gæti orðið lykilmaður í enduruppbyggingu liðsins.

Ekki er þó talið líklegt að Real Madrid samþykki sölu nema mjög hátt tilboð berist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Í gær

Englandsmeistararnir að klára fyrstu kaupin

Englandsmeistararnir að klára fyrstu kaupin
433Sport
Í gær

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London
433Sport
Í gær

Breytt stefna á RÚV sem setur Heimsmeistaramótið í annað sætið

Breytt stefna á RÚV sem setur Heimsmeistaramótið í annað sætið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Eigandi Napoli hótar því að sparka De Bruyne og Lukaku út í sumar

Eigandi Napoli hótar því að sparka De Bruyne og Lukaku út í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi