fbpx
Mánudagur 08.júní 2026

Nokkur ráð fyrir þá sem eiga erfitt með að vakna á morgnana

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 26. janúar 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er agaleg á morgnana. Mig langar bara að kúra í myrkrinu og halda áfram að dreyma. Eftir því sem ég eldist verður þetta verra – og á hverjum vetri þarf ég að rifja upp ráðin sem virka best.

Gjörið svo vel, hér koma Rögguráð um hressleika á morgnana!

  • Farðu að sofa á sama tíma á hverju kvöldi – notaðu klukkuna á símanum til að minna þig á háttatímann.
  • Búðu þér til háttarútínu – til dæmis að drekka tebolla alltaf hálftíma fyrir svefn, hreinsa andlitið og bursta tennur eða annað sem þér finnst gott að gera.
  • Bannaðu raftæki önnur en ljós og kynlífsleikföng í svefnherberginu – þennan hefurðu eflaust heyrt áður. Rúmið er nefnilega bara fyrir svefn og ástarleiki.
  • Sofðu í frekar köldu herbergi – bættu við náttfötum og ábreiðum í stað þess að hækka á ofninum. Best er að hafa rifu á glugga. Ferskt loft gerir kraftaverk.
  • Hafðu vekjaraklukkuna langt frá rúminu – sérstaklega ef þú ert ein/n af þeim sem ýtir á „snooze“ takkann í tíma og ótíma.
  • Hafðu lampa á náttborðinu – kveiktu á honum strax og klukkan hringir.
  • Best er þó að vera með vekjaraklukku sem hermir eftir sólarupprás – það er mesta furða að þær séu ekki löngu orðnar að staðalbúnaði hér á landi.
  • Hreyfðu líkamann strax og þú vaknar – teygðu þig, fettu og brettu. Þannig fær heilinn skilaboð um að nú skuli hressa sig og blóðflæðið fer í gang.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“
Pressan
Í gær

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.