fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Súkkulaði og ávaxta fondue sem mun slá í gegn!

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 8. janúar 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurskornir ávextir og brætt súkkulaði er einn af uppáhalds eftirréttum dætra minna. Þær velja þetta fram yfir bland í poka og öll önnur sætindi ef þær mega velja. Ávextirnir eru svo ferskir og heitt súkkulaðið gerir þá að besta sælgæti sem hægt er að hugsa sér. Mikilvægt er bara að skera niður nóg af ávöxtum því það er ótrúlegt hvað þeir eru fljótir að hverfa!

Súkkulaði fondue með ávöxtum (fyrir c.a fjóra)

  • 1/2 niðurskorinn ferskur ananas
  • 250 gr hindber (2 öskjur)
  • 500 gr jarðaber (2 x 250 gr askja)
  • 3 stórir bananar
  • Litlir sykurpúðar eða annað sem ykkur langar að dýfa í súkkulaðið.
  • 250 gr suðusúkkulaði (saxað)
  • 100 gr Toblerone súkkulaði (saxað)

Skerið niður ávextina og bræðið súkkulaðið (báðar tegundir saman). Gott er að nota Fondue pott til að halda súkkulaðinu heitu en alls ekki nauðsynlegt. Þetta er venjulega það fljótt að klárast að hefðbundin skál dugar vel til að bera réttinn fram og grillpinnar ef þið eigið ekki Fondue pinna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Þórdís Lóa stefnir norður í land
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
EyjanFastir pennar
Fyrir 8 klukkutímum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.