fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

„ Man ég eftir að vakna með þig ofan á mér“ – „Þú munt aldrei vita hvernig þú braust á mér“

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 12. mars 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vildi ég óska þess

Þetta kvöld, margt á þessu kvöldi vildi ég óska þess að hefði farið öðruvísi
Þetta kvöld er brennt í heilann á mér
Ég man lítið en man ég samt eitthvað
Ég man hvað ég átti erfitt með að halda hausnum uppi
Ég man að þú færðir þér nær mér þegar þú talaðir við mig
En svo margt vildi ég óska þess að hefði farið öðruvísi


Vildi ég óska þess að ég hefði ekki drukkið svona mikið
Vildi ég óska þess að þér hefði ekki fundist allt í lagi að grípa í klofið á mér
Vildi ég óska þess að fólk hefði sér hversu drukkin ég var og stoppað þig
Man ég enn að ég vildi bara komast heim
Man ég enn að ég vildi komast frá þér
En afhverju sagði ég ekki bara NEI
Man ég fara út af barnum og þú varst á hælunum á mér
Man ég eftir leitinni að leigubíl
Man ég hvað leitin var stutt því það var einn beint fyrir utan
Vildi ég óska þess að þér hefði ekki fundist sjálfsagt að koma inn í hann á eftir mér þegar ég reyndi að loka hurðinni
Vildi ég óska þess að bara af því ég sagði ekki nei að þú gætir bara komið með mér
Man ég enn þegar þú ýttir mér fast á hurðina og tróðst tungunni ofan í kokið á mér því þú hélst að það yrði sexý og að ég fílaði það bara því ég gat ekki komið upp orði vegna ölvunar


Vildi ég óska þess að þér hefði ekki fundist í lagi að grípa mig aftur í klofið
Man ég eftir því að fjarlægja höndina
Vildi ég óska þess að það hefði verið nógu mikið svar fyrir þig að stoppa
Allt var svart
Vildi ég óska þess að þú hefðir ekki elt mig heim
Ég fór viljug úr fötunum en vildi ég óska þess að þú hefðir séð mitt ástand og farið
Vildi ég óska þess að ég nakin liggjandi þarna áfengisdauð hefði verið nógu mikið svar fyrir þig að fara
Þú veist að nei þýðir ekki já
Þú veist að ég var ekki í ástandi til að svara í þessu augnabliki
Þannig hvernig fannst þér allt í lagi að klifra ofan á mig?
Man ég eftir að vakna með þig ofan á mér
Man ég eftir flökurleikanum
Man ég eftir að reyna að ýta þér af mér
Man ég eftir að það tók tvær tilraunir fyrir mig að gera það
Man ég eftir að þurfa hlaupa á klósettið að æla
Man ég eftir því að bíða smá á klósettinu
Man ég eftir því að vonast að þú værir farinn þegar ég kæmi aftur
Man ég eftir að sjá þig klæða þig og vera dauðfegin
Man ég eftir því að ýta þér út
Enn man ég eftir bankinu þínu á gluggan hjá mér að biðja mig um að fá að gista
Man ég eftir hvað ég var hvöss og sagði NEI
Afhverju, afhverju gat ég ekki sagt þetta orð fyrr


Enn átta ég mig á því í dag að þú varst kannski sjálfur fullur
Enn átta ég mig á því í dag að það var ekki nóg að segja ekki nei
Enn átta ég mig á því í dag að þú hefur enn ekki fattað hvað gerðist þetta kvöld
En ég man eftir tilfinningunni
Ég man eftir að finnast ég vera svikin af einstaklingi sem ég þekkti
Enn man ég eftir að líða ógeðslega með mig
En nú í dag veit ég að bara af því ég sagði ekki NEI þá þýddi það ekki að ég sagði já
Ég veit vel að þú munt aldrei vita hvernig þú braust á mér en þessi tilfinningu mun ég hafa að eilífu.


Höfundur er íslensk stúlka sem óskar nafnleyndar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Orðið mjög ólíklegt að Rashford verði keyptur yfir

Orðið mjög ólíklegt að Rashford verði keyptur yfir
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fyrrum hetja Liverpool ekki spilað í meira en 700 daga

Fyrrum hetja Liverpool ekki spilað í meira en 700 daga
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.