fbpx
Mánudagur 08.júní 2026

Scott Disick og Bella Thorne kela í sólinni í Frakklandi: „Hann fór klárlega með henni til að pirra Kourtney“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 25. maí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Scott Disick barnsfaðir og fyrrverandi kærasti Kourtney Kardashian sást eiga notalegar stundir með raunveruleikastjörnunni og leikkonunni Bellu Thorne. Þau fóru saman til Frakklands vegna Cannes kvikmyndahátíðinnar og sást til þeirra hafa gaman í sólinni á miðvikudaginn. Þau voru við sundlaugina að hlusta á tónlist, kyssast og fá sér vín. „Þau voru að hlæja og skemmta sér,“ sagði heimildarmaður E! News.

„Þau eyddu öllum deginum að kúra saman og reyna við hvort annað. Þau kysstust nokkrum sinnum og á einum tímapunkti lá Bella ofan á Scott og hann strauk henni um hárið. Þegar Scott fékk FaceTime símtal þá var Bella að fíflast í bakgrunninum.“

Samkvæmt öðrum heimildarmanni E! News er Scott að nota tíma sinn með Bellu til að fara í taugarnar á Kourtney Kardashian. Bleikt greindi frá því um daginn að Kourtney væri komin með nýjan kærasta, Younes Bendjima. Kourtney og Younes eru einnig stödd í Frakklandi og eru aðeins í tíu mínútna fjarlægð frá Scott og Bellu.

„Scott tók Bellu með til Frakklands hundrað prósent til að pirra Kourtney. Þetta er mjög: „Sjáum hvernig þetta lætur þér líða“ sem Scott er að gera. Þetta er barnalegt en þetta er Scott,“

sagði heimildarmaðurinn.

Annar heimildarmaður segir að Younes sé ekki eins og Scott. „Kourtney og Younes eru að skemmta sér mjög vel saman. Hún kann rosalega að meta hvað hann er ábyrgur og að hann djammi ekki. Hann er andstæðan við Scott á marga vegu og það hefur verið frábær upplifun fyrir Kourtney.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Spillingarherferð Xi Jinping stendur sem hæst – Fyrrum ráðherrar dæmdir til dauða

Spillingarherferð Xi Jinping stendur sem hæst – Fyrrum ráðherrar dæmdir til dauða
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eftirsóttur leikmaður í enska boltann

Eftirsóttur leikmaður í enska boltann
EyjanFastir pennar
Fyrir 16 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Undirstaða efnahagslegs sjálfstæðis

Björn Jón skrifar: Undirstaða efnahagslegs sjálfstæðis
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir vel mögulegt að hann fari frá Liverpool – Tjáir sig einnig um framtíð tveggja liðsfélaga

Segir vel mögulegt að hann fari frá Liverpool – Tjáir sig einnig um framtíð tveggja liðsfélaga
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fylgjast grannt með rússnesku herskipi innan íslensku efnahagslögsögunnar

Fylgjast grannt með rússnesku herskipi innan íslensku efnahagslögsögunnar
Eyjan
Fyrir 22 klukkutímum

Ísfélagið vigtar aflann hjá fyrirtæki í eigu forstjórans eftir afturköllun leyfis

Ísfélagið vigtar aflann hjá fyrirtæki í eigu forstjórans eftir afturköllun leyfis
EyjanFastir pennar
Fyrir 23 klukkutímum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.