
Aaron Spencer hafði verið ákærður fyrir morð af annarri gráðu vegna dauða Michael Fosler, 67 ára manns, sem var skotinn til bana í október árið 2024. Réttarhöld í málinu voru fyrirhuguð á næstu vikum.
Spencer neitaði sök frá upphafi og hélt því fram að hann hefði gripið til aðgerða til að vernda dóttur sína, sem þá var 13 ára gömul. Fosler hafði áður verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota gegn stúlkunni og var laus gegn tryggingu þegar hann lést.
Samkvæmt gögnum málsins vaknaði Spencer aðfaranótt 8. október 2024 og uppgötvaði að dóttir hans var horfin. Hann fann hana í bíl Foslers og ók á eftir honum þar til hann stöðvaði bifreiðina. Þegar Fosler steig út úr bílnum skaut Spencer hann.
Að því loknu kom hann dóttur sinni í öryggi og hringdi sjálfur í neyðarlínuna 911 þar sem hann greindi frá því að hann hefði skotið mann.
Í apríl á þessu ári kom hins vegar í ljós að rannsóknarlögreglumaður hjá sýslumannsembættinu í Lonoke-sýslu hafði glatað minniskorti úr myndavél lögreglubíls, en upptakan var talin eitt af lykilgögnum málsins þar sem hún átti að hafa sýnt atburðarásina í kringum skotárásina.
Ralph Wilson yngri, sérstakur dómari í málinu, féllst á að niðurfelling ákærunnar væri óvenjulegt og afar róttækt úrræði. Hann taldi þó að framganga lögreglu hefði verið svo alvarleg að ekki væri hægt að halda málinu áfram. Hún hefði meðal annars sýnt af sér vanrækslu við meðferð sönnunargagna.
„Með hliðsjón af öllum aðstæðum og þeim sérstöku staðreyndum sem hér liggja fyrir telur dómstóllinn að framganga lögregluyfirvalda hafi verið svo vítaverð að réttlætanlegt sé að vísa málinu frá,“ segir í úrskurðinum.
Spencer hefur á sama tíma hafið stjórnmálaferil. Fyrr á þessu ári tilkynnti hann framboð sitt til embættis sýslumanns í Lonoke-sýslu og sagðist hafa orðið vitni að alvarlegum brestum í löggæslu og dómskerfi í gegnum eigin reynslu.
Hann vann nýverið forkjör Repúblikanaflokksins með 53,5 prósent atkvæða og mun etja kappi við frambjóðanda Demókrataflokksins í kosningum sem fram fara í haust.