fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Hornsteinn lagður að Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur

Minnir á ómetanlegt gildi tungumála heimsins

Ari Brynjólfsson
Sunnudaginn 19. júní 2016 13:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag, 19. júní á réttindadegi kvenna, var lagður hornsteinn að húsi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við hátíðlega athöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskóla Íslands. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, lögðu hornstein að byggingunni og fluttu stutt ávörp. Húsið kemur til með að verða formlega tekið í notkun næsta vor.

Byggingin mun hýsa Vigdísarstofnun – alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar, sem mun starfa undir merkjum UNESCO. Þar verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur og í húsinu er aðstaða fyrir fyrirlestra-, ráðstefnu- og sýningarhald, vinnuaðstaða fyrir erlenda gestafræðimenn og fyrir kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum. Þar verður einnig Vigdísarstofa, tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur, þar sem hægt verður að fræðast um líf hennar og störf. Fjölmargir innlendir og erlendir aðilar hafa stutt verkefnið með myndarlegum fjárframlögum.

Í ræðu sinni sagði Vigdís Finnbogadóttir að hún væri „afar stolt af því að Íslendingar, sem búa við það lán að hafa tekist að varðveita aldagamalt tungumál sitt, skuli með byggingu þessa húss geta minnt á ómetanlegt gildi tungumála heimsins með þá visku sem þau geyma.“ Hún nefndi að þetta ævintýri, sem hér væri að verða að veruleika, hafi átti upphaf sitt um aldamótin síðustu, á 90 ára afmæli Háskóla Íslands þegar framsýni réði því að mynduð var við Háskóla Íslands sérstök tungumálastofnun, sem héldi utan um öll þau erlendu tungumál sem kennd eru við Háskóla Íslands. Vigdís sagði sterka stofnun þarfnast eigin húsnæðis og „svo sem sjá má á þessari stundu hefur stofnunin eflst og dafnað og ég vil fá að þakka öllum þeim aðilum sem af einhug hafa unnið að þeim áfanga sem við erum nú vitni að.“

Í máli Jóns Atla Benediktssonar rektors kom fram að hús Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur skipti gríðarlega miklu máli fyrir rannsóknir og kennslu í erlendum tungumálum og menningu og ætti eftir að verða mikil lyftistöng fyrir menningarstarf á Íslandi. Þar yrði þróttmikill vinnustaður og húsið viðkomustaður innlendra og erlendra gesta. Húsið væri til marks um metnað Háskóla Íslands og margra annarra til að efla þau fræði sem stuðluðu að farsælum samskiptum á erlendum tungum og aukinni vitund um mikilvægi tungumála fyrir menningu alls mannkyns. Rektor sagði að byggingin yrði vettvangur alþjóðlegrar samvinnu og með henni og samstarfinu við UNESCO sköpuðust einstök tækifæri fyrir Íslendinga til að láta til sín taka á þessu sviði og stuðla þannig að vexti og viðgangi tungumála og fjöltyngis á heimsvísu.

Rektor þakkaði svo Vigdísi fyrir mikilvægt framlag hennar, eljusemi og einarðan áhuga; án hennar væri hvorki hús né hornsteinn. Rektor sagði starfsmenn og nemendur Háskóla Íslands vera fulla þakklætis í garð Vigdísar og stolta af því að mega telja hana til háskólasamfélagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 6 dögum

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk
Fókus
Fyrir 1 viku

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“