fbpx
Föstudagur 19.desember 2025

Menningin er rík á Seltjarnarnesinu

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. október 2017 23:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nína Dögg Filippusdóttir, bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2017 og Sjöfn Þórðardóttir, formaður Menningarnefndar Seltjarnarness.

Menningarhátíð Seltjarnarness fór fram um liðna helgi og var fjöldi veglegra, áhugaverðra og skemmtilegra viðburða í boði frá fimmtudegi til sunnudags.

Undirbúningur stóð yfir í eitt ár og lögðu um þrjú hundruð manns sitt af mörkum til að gera hátíðina að veruleika og sem glæsilegasta. Það var formaður menningarnefndar, Sjöfn Þórðardóttir, sem setti menningarhátíðina á fimmtudagseftirmiðdag.

„Menningarstarf er veigamikill þáttur í bæjarlífinu allt árið um kring, enda eflir það bæjarbrag og ímynd Seltjarnarness út á við. Tilgangur hátíðarinnar er að auki að brjóta upp hverdagsleikann, upplýsa, fræða, skemmta og virkja mannauðinn og ná til fólksins með samveru fjölskyldu og vina. Menning og listir gleðja augað, auka víðsýni okkar, skilning og auka sköpunargleðina sem býr innra með okkur öllum. Mikilvægt er því að hvetja börn og ungmenni til þátttöku í menningarviðburðum í þeim tilgangi að auðga líf þeirra og færa þeim góðar minningar, þekkingu og reynslu,“ ritar Sjöfn í kynningarbæklingi fyrir hátíðina.

Margt var um manninn við setninguna og á hinum ýmsu viðburðum helgarinnar. Ljóst er að listalífið á Seltjarnarnesi er fjölskrúðugt og metnaðarfullt.

Benedikt Jón Þórðarson, Hilmar Örn Agnarsson og Sigríður Nanna Gunnarsdóttir.
Björgólfur Thorsteinsson og Vilhjálmur Bjarnason.
Soffía Frímannsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri, Guðmundur Jón Helgason og Kristján Hilmir Baldursson.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Verðkönnun á jólabókum: Þarna finnurðu oftast lægsta verðið

Verðkönnun á jólabókum: Þarna finnurðu oftast lægsta verðið
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Óhugnanlegar upplýsingar fundust á tölvu háskólanemans frá því skömmu áður en hún lést

Óhugnanlegar upplýsingar fundust á tölvu háskólanemans frá því skömmu áður en hún lést
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Íþróttavikan: Peningahlið íþróttanna og fréttir vikunnar

Íþróttavikan: Peningahlið íþróttanna og fréttir vikunnar
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Gekk inn á lögreglustöð í Grafarholti í handjárnum

Gekk inn á lögreglustöð í Grafarholti í handjárnum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.