fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Plastbarkamálið: Segir ekkert því til fyrirstöðu að hefja sakamálarannsókn á Tómasi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 22. maí 2026 19:30

Tómas Guðbjartsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er hægt að hefja rannsókn þó að brotið hafi verið framið í Svíþjóð, þar sem íslenskur ríkisborgari á hlut að máli, þ.e. Tómas,“ segir Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður fjölskyldu manns sem lést vegna plastbarkaígræðslu árið 2014, í stuttu svari við fyrirspurn DV.

Sigurður ræddi þennan sama punkt við DV í upphafi árs 2024 í tengslum við umfjöllum sem þá var í fjölmiðlum um plastbarkamálið svonefnda. Þá sagði hann:

„Refsilögsaga yfir brotum Íslendinga erlendis er á Íslandi, eins og við þekkjum með mál Jóns Baldvins, þar sem hann átti að hafa strokið rassinn á konunni á Spáni en réttað var yfir honum á Íslandi. Þá fer það eftir því hvort háttsemin er refsiverð í því landi þar sem brotið er framið. Ef brot er framið í Svíþjóð og það er búið að refsa einum í Svíþjóð, þá getur verið tilefni til rannsóknar á aðkomu Íslendinga gagnvart Íslendingi þar sem refsilögsaga er íslenska ríkisins.“

Sigurður sagði þó að hann væri ekki þar með að segja að sækja ætti Tómas til saka en kom með það innlegg í umræðuna að „þó að lögfræði sé einföld þá er hún ekki svo einföld að þó að búið sé að leysa úr refsiþætti eins aðila í útlöndum þá sé það ótækt að gera slíkt á Íslandi.“

Sumarið 2023 var ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarini dæmdur í Svíþjóð til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir grófar líkamsárásir gagnvart þremur einstaklingum sem fengu grædda í sig plastbarka hjá honum. Sjúklingarnir létust allir eftir aðgerðirnar. (Vísir.is)

Einn hinna látnu var frá Íslandi, hinn 36 ára Eritreu-maður Andemariam Beyene. Hann greindist með krabbamein í barka árið 2009 en árið 2011 fór hann til Svíþjóðar þar sem græddur var í hann plastbarki á Karólinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Var þetta fyrsta slíka aðgerðin í heiminum en Eritríumaðurinn lést vegna aðgerðarinnar. Sá sem framkvæmdi hana var var áðurnefndur Paolo Macchiarini.

Tómas Guðbjartsson tók þátt í aðgerðinni sem íslenskur læknir mannsins og fylgdi honum utan.

Tómas var ekki lögsóttur í Svíþjóð vegna hlutdeildar sinnar í málinu og hefur heldur ekki verið lögsóttur hér á landi. Fjölskylda hins látna stefndi hins vegar íslenska ríkinu og krafðist viðurkenningar á bótaskyldu. Fjölskyldan hafði sigur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en þar er farið hörðum orðum um framgöngu Tómasar í málinu og hún sögð vera saknæm.

Sjá einnig: Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Sú spurning vaknar hvort niðurstöður héraðsdóms í umræddu máli hvað varðar Tómas séu tilefni til að hefja sakamálarannsókn á þætti hans í því. Einnig hefur verið gagnrýnt af hálfu formanns Læknafélags Íslands, Steinunnar Þórðardóttur, að Tómas hafi ekki fengið að bera hönd fyrir höfuð sér fyrir héraðsdómi þar sem farið er slíkum áfellisorðum yfir framgöngu hans (RÚV). Hún bendir á að niðurstaða héraðsdóms sé nokkuð á skjön við rannsóknarskýrslu um málið frá árinu 2017. Hún segir jafnframt í viðtali við RÚV:

„Annað sem kom okkur svolítið á óvart að í þessum dómi er fjallað með mjög ítarlegum hætti um ávirðingar á einn nafngreindan lækni, og settar fram fullyrðingar um hans ábyrgð, án þess að hann hafi verið kallaður fyrir dóm og hafi fengið tækifæri til að tjá sig áður en dómur féll. Okkur finnst það skjóta skökku við að hans vitnisburður hafi ekki verið hafður til hliðsjónar.“

Tómas hefur verið í veikindaleyfi frá störfum sínum á Landspítalanum og Háskóla Íslands undanfarin misseri en árið 2024 greindist hann með ristilkrabbamein.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna
Fréttir
Í gær

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“
Fréttir
Í gær

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum