fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt

Eyjan
Laugardaginn 23. maí 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér á árum áður fylgdust þeir alltaf með talningu á kosninganótt, faðir minn heitinn og Stefán Bjarnason vinur hans. Þeir voru báðir einlægir sósíalistar og studdu gamla Alþýðubandalagið. Félagarnir blönduðu sér sérstakan kosningadrykk sem þeir kölluðu Vodka rot. Það var vodka 75% og hitaveituvatn blandað til helminga. Venjulega voru tölurnar upp úr kössunum þeim ekki að skapi. Afneitun þeirra á raunveruleikann var alltaf í réttu hlutfalli við magnið af Vodka rot sem þeir drukku. Þeir sögðu venjulega að ekkert væri að marka þessar tölur vegna þess að allt mundi breytast með lokatölunum. „Okkar kjósendur skila sér seint á kjörstað svo að þetta á eftir að lagast.“ „Nóttin er ung!“ Þegar lokaniðurstaða lá fyrir og árangur flokksins á engan hátt viðunandi fundu þeir einhverja réttlætingu á óförunum.

Allir sem umgengist hafa drykkjumenn þekkja afneitun, réttlætingu, dyggðaskreytingu og aðrar undankomuleiðir frá sannleikanum. Mér datt þetta í hug um liðna helgi á kosninganótt. Margir frambjóðendur og oddvitar flokkanna bulluðu eins og gleðimenn á fylleríi. Sumir voru í afneitun og töluðu um varnarsigur þótt fylgið væri farið út í buskann. Allir þökkuðu kjósendum sínum og fylgdarliði þótt ekki væri af miklu að státa. Meira að segja píratar sem þurrkuðust út sögðust hafa fundið fyrir miklum meðbyr og engin ástæða væri til að örvænta. Þeir hótuðu að koma aftur að fjórum árum liðnum öflugri en nokkru sinni. Flokkur fólksins missti óvænt megnið af sínu fylgi fyrir einhvern misskilning en leiðtoginn þakkaði þessum fáu kjósendum traustið.

Þegar upp var staðið tapaði enginn nema Guðmundur Árni í Hafnarfirði, gamall félagi minn úr Alþýðuflokknum. Allir aðrir unnu annað hvort góðan sigur eða öruggan varnarsigur. Þetta var eins og einkunnagjöf í nútíma skólakerfi. Allir eru jafnir í miðjumoði samtímans. Ekki er lengur talað um fall eða afhroð í pólitík heldur varnarsigur í óhagstæðu umhverfi. Því miður þekktu pabbi og Stefán ekki þetta orð þótt það sé eins og dregið upp úr vodkaflösku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Flóttinn úr Sjálfstæðisflokknum

Sigmundur Ernir skrifar: Flóttinn úr Sjálfstæðisflokknum