

Ásthildur Sturludóttir mun láta af störfum sem bæjarstjóri Akureyrar en samningar hafa náðst um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn eftir kosningarnar á laugardaginn.
Ásthildur tilkynnir um starfslok sín á Facebook samhliða því að greint er frá því að L-listinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafi náð saman um myndun meirihluta en hver þessara flokka fékk 2 bæjarfulltrúa kjörna. Meirihlutinn verður kynntur á föstudag og þá verður væntanlega greint frá því hver tekur við sem bæjarstjóri. Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans tjáði Vísi að ekki yrði auglýst eftir bæjarstjóra og því ekki ólíklegt að einn af oddvitum flokkanna þriggja verði bæjarstjóri.
Ásthildur var ráðin bæjarstjóri eftir kosningarnar 2018 og hefur gegnt embættinu síðan. Hún gerir upp árin átta í ítarlegum Facebook-pistli og gerir grein fyrir þeim verkefnum sem unnið hefur verið að í bæjarstjóratíð hennar og því helsta sem hrint hefur verið í framkvæmd á þessu tímabili:
„Ég var ráðin af L-lista, Framsóknarflokki og Samfylkingu sumarið 2018 og kom mörgum á óvart að innmúraður Sjálfstæðismaður væri ráðinn til starfans. Við áttum hins vegar óaðfinnanlegt samstarf og komum fjölmörgu í verk á krefjandi tímum.“
„Eftir kosningarnar 2022 var myndaður meirihluti Sjálfstæðismanna, L-lista og Miðflokks þar sem mér var áfram treyst fyrir bæjarstjórastólnum. Samstarf mitt við meirihlutann hefur verið framúrskarandi gott og við höfum náð miklum árangri í uppbyggingu bæjarins og margt er enn á döfinni.“
Þakkar Ásthildur þeim bæjarfulltrúum sem hún hefur starfað með og starfsfólki bæjarins og segir að lokum:
„Í samfélaginu hér á Akureyri búa gríðarleg tækifæri og framtíðin er sannarlega björt ef bæjarstjórn, bæjarbúar og atvinnulífið sýna samstöðu og hafa til þess metnað að halda áfram uppbyggingu liðinna ára með það fyrir augum að gera gott betra og efla svæðisborgina okkar. Ég óska nýrri bæjarstjórn velfarnaðar í mikilvægum störfum og nýjum bæjarstjóra óska ég alls hins besta í flóknum verkefnum. Takk fyrir mig.“