

FH er í fallsæti í Bestu deild karla, með aðeins tvö stig eftir sjö leiki. Staða liðsins var til umræðu í Dr. Football.
Hafnarfjarðarfélagið fór í miklar breytingar og svokallaða nýja stefnu í vetur. Jóhannes Karl Guðjónsson á að leiða þá stefnu. Byrjunin á leiktíðinni hefur hins vegar verið afar döpur og stuðningsmenn eru margir hverjir öskuillir.
„Þetta virðist teygja sig hátt upp í félaginu, maður heyrir að stjórnun sé ábótavant. Það eru margir ósáttir í Hafnarfirði með hvernig staðið er að málum,“ sagði fyrrum markvörðurinn Sindri Snær Jensson í Dr. Football.
Eiður Smári Guðjohnsen var annar sérfræðinga þáttarins. Knattspyrnugoðsögnin er auðvitað fyrrum þjálfari FH, en hann var þar árið 2020 og 2022.
„Þetta félag er með bestu aðstöðuna á Íslandi, frábæran völl. Ég vil ekki vera ósanngjarn, af því ég var að þjálfa þetta lið og eitthvað af þessum strákum. Ég kaupi það alveg að þeir séu með skýra sýn um hvernig þeir ætla að breyta, leita innan félagsins til að koma strákum upp í meistaraflokk og gefa þeim fleiri mínútur. En þú getur ekki gert það með alla í einu á sama tíma. Þú verður að mjaka þeim inn,“ sagði Eiður.
Hann telur að breytingin þurfi að ganga aðeins hægar fyrir sig. Það hafi sést í bikarleik FH á dögunum, sem tapaðist 5-0 gegn Fylki.
„Þetta minnir mig smá á Chelsea. Þú verður líka að vera með menn sem eru tengdir félaginu, með aðeins meiri reynslu, til þess að þessir strákar komi upp í meistaraflokk og fái að læra af einhverjum og þróast inn í það hlutverk.
Þessi bikarleikur á móti Fylki var bara skömmustulegur. Það eru alltof mikið af strákum að koma upp á sama tíma og þeir eru allir að horfa í kringum sig: Hvert á ég að leita til að fá hjálparhönd?“