
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun en meint brot átti sér stað sunnudaginn 17. mars 2024 á heimili brotaþola í Hafnarfirði.
Ákærði er sagður hafa snert brjóst konunnar utanklæða í sófa í stofu og síðan dregið hana inn í svefnherbergi þar sem hann ýtti henni á rúmið, tók hana úr buxum og nærbuxum, kyssti hana á munninn, strauk brjóst hennar utanklæða, snerti kynfæri hennar og setti fingur
inn í leggöng hennar, en ákærði virti ekki endurteknar óskir konunnar um að hætta.
Konan krefst 3,5 milljóna króna í miskabætur.
Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 13. maí síðastliðinn.