fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Ákærður fyrir stórhættulega hnífstunguárás fyrir utan Réttarholtsskóla

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 13:30

Réttarholtsskóli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir tvær líkamsárásir en sú fyrri átti sér stað fyrir utan Réttarholtsskóla, aðfaranótt þriðjudagsins 10. september árið 2024. Ákærði er sagður hafa veist að manni og stungið hann með hníf í vinstri síðu og mjöðm með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut 1 sm langan línulegan skurð á kviðvegg í vinstri síðu og 1 sm langan línulegan skurð yfir vinstri mjaðmakamb. Einnig hlaut hann yfirborðsáverka á úlnlið og hendi.

Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa á sama tíma haft í fórum sínum 70 stykki af MDMA.

Maðurinn er ennfremur ákærður fyrir líkamsárás utandyra við Álfabakka miðvikudagskvöldið 6. ágúst árið 2025. Hann er sagður hafa veist að manni og slegið hann tvívegis í höfuðið með járnröri með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut tvo opna skurði framarlega á hársverði og hruflsár á vinstra hné.

Brotaþoli árásarinnar við Réttarholtsskóla krefst rétt tæplega 2,5 milljóna króna í bætur og brotaþoli árásarinnar við Álfabakka 3,75 milljóna króna, þar af eru 3 milljónir í miskabætur, 250 þúsund í skaðabætur og 500.000 í þjáningarbætur.

Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur 1. júní næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Nota nýjustu tækni til að svíkja fé út úr Íslendingum

Nota nýjustu tækni til að svíkja fé út úr Íslendingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“