

Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingar og oddviti lista flokksins í Hafnarfirði, ætlar að hætta í pólitík og mun ekki taka sæti í bæjarstjórn. Árni Rúnar Þorvaldsson bæjarfulltrúi mun taka við sæti Guðmundar. Frá þessu greinir mbl.is.
Samfylkingin náði ekki þeim árangri sem stefnt var að í Hafnarfirði og á talningarnótt lýsti Guðmundur því yfir, eftir að fyrstu tölur voru kynntar, að hann ætlaði alvarlega að íhuga stöðu sína og tæki persónulega ábyrgð á slæmu gengi flokks síns. Lýsti hann því þá við RÚV að hann ætlaði alvarlega að íhuga stöðu sína í stjórnmálum en mögulega væri hans tími hreinlega kominn og liðinn.
„Og ég hef alltaf í pólitík axlað mína ábyrgð og ég skynja það að kannski er minn tími kominn,“ sagði Guðmundur á laugardagskvöldið en nú hefur hann staðfest í samtali við mbl.is að hann ætli ekki að þiggja sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og ætlar auk þess að stíga til hliðar sem varaformaður Samfylkingarinnar.
„Þetta er mér að kenna og ég stíg frá borði. Það er hreinlega ekki eftirspurn eftir mér lengur. Og þá snýr maður sér að öðru. Kannski golfi? Þó að ég geti ekki neitt,“ segir Guðmundur Árni í samtali við Vísi þar sem hann segist nú íhuga að snúa sér að golfi þó að hann sé nú ekki mjög fær í þeirri íþrótt.