fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Viðurkennir að Samfylkingin hafi tapað trausti í borginni – „Við tökum það til okkar“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. maí 2026 13:10

Kristrún Frostadóttir, DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra viðurkennir að flokkur hennar, Samfylkingin, hafi tapað trausti borgarbúa. Flokkurinn taki skilaboð borgarstjórnarkosninganna til sín og stefni á að vinna sér inn traustið til baka. Þetta kemur fram í færslu forsætisráðherra á Facebook þar sem hún gerir upp sveitarstjórnarskosningarnar sem fóru fram um helgina.

Rekur Kristrún að þrátt fyrir allt hafi Samfylkingin fengið næstmest fylgi á landsvísu og náð að fjölga sveitarstjórnarfulltrúum um helming. Aðeins einu sinni hafi flokkurinn verið með fleiri sveitarstjórnarfulltrúa en nú.

„Á laugardag fóru fram kosningar þar sem kjósendur völdu fólk til forystu í sínu sveitarfélagi til næstu fjögurra ára. Það er ekki sjálfgefið að biðja um og fá traust í kosningum. Til forystu í sveitarfélagi eða við stjórn landsmála. Hvert einasta atkvæði er mikils virði og við erum þakklát fyrir atkvæði greidd Samfylkingu og frambjóðendum okkar um land allt.
Samfylkingin fékk næstmest fylgi á landsvísu í þessum kosningum. Við fjölguðum fulltrúum okkar í sveitarstjórnum um helming og eru þeir nú 38 talsins. Það er næstmesti fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa af S-listum frá stofnun flokksins.

Árangur Samfylkingar var ekki síst ánægjulegur úti á landsbyggðunum. Hringinn í kringum landið eru jafnaðarmenn að koma til baka og festa Samfylkingu í sessi á ný sem sterkan jafnaðarflokk um land allt. Þetta skiptir okkur miklu máli.“

Samfylkingin hafi þó sett markið hærra og nú sé ljóst að víða hafi jafnaðarmenn ekki kosið Samfylkinguna í þetta sinn. Þetta séu viss skilaboð sem Kristrún tekur alvarlega enda hafi kjósendur alltaf rétt fyrir sér. Nú muni fulltrúar flokksins um land allt hlusta eftir vilja fólksins og leita leiða til að standa betur undir væntingum.

Hvað borgina varðar segir Kristrún að Samfylkingin muni láta til sín taka í stjórnarandstöðu enda liggi nú fyrir að flokkurinn þurfi aftur að vinna sér inn traust borgarbúa.

„Sjálfstæðisflokkur verður nú í forystu fyrir fjölmennustu sveitarfélögum landsins, og þar á meðal í Reykjavík. Ég óska þeim góðs gengis og við munum leggja okkur fram við að eiga áfram gott samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga. En Samfylking mun alltaf veita kröftuga andstöðu við harðri hægripólitík sem kemur niður á vinnandi fólki og veikir það sem við eigum hérna saman á Íslandi. Það er skylda okkar sem jafnaðarfólks og þar gefum við ekkert eftir.

Í borgarmálum þarf Samfylkingin að byggja aftur upp traust. Þó að flokkurinn hafi haldið sínum fimm fulltrúum í borgarstjórn þá er þetta ljóst. Við tökum það til okkar. Þessi uppbygging hefst hjá nýrri forystu okkar í borginni strax í dag. Enda tekur tíma að vinna traust og það getum við aðeins gert með verkum okkar.“

Flokkurinn hafi gengið í gegnum mikla endurnýjun á undanförnum árum, fyrst í landsmálum og nú í sveitarstjórnum þar sem 18 af 19 oddvitum flokksins eru nýir. Þessir aðilar séu ný kynslóð jafnaðarfólks sem muni láta til sín taka á næstu árum. Samfylkingin muni áfram leiða breytingar í ríkisstjórninni með gildi jafnaðarmennsku að leiðarljósi.

„Lögum ríkisfjármálin, bætum samgöngur, höggvum á hnúta í orkumálum, eflum heilbrigðiskerfið, byggjum verknámsskóla, innleiðum réttlát auðlindagjöld, fjölgum íbúðum, tryggjum trausta stjórn á útlendingamálum, hlúum að eldra fólki og öryrkjum – svo nokkur dæmi séu nefnd.
Að lokum þetta: Þakkir til kjósenda, frambjóðenda og sjálfboðaliða allra flokka fyrir ykkar framlag til lýðræðisins í okkar frábæra landi. Það er svo margt sem við getum gert betur – en líka mikið sem við eigum hérna saman sem við viljum hlúa að og vernda.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn