
Eigandi gistiheimilisins Víkingur/Viking Guesthouse, að Þverholti 20 í Reykjavík, er sagður selja kannabisefni, bæði gras og hass, í stórum stíl, ekki síst til þeirra sem gista á heimilinu.
Hljóðupptaka af símtali sem DV hefur undir höndum styður þetta. Símtalið fór fram í síðustu viku en þá hringdi maður sem gistir á gistiheimilinu í ónefndan mann sem þóttist falast eftir fíkniefnum, sá sem gistir lét eiganda gistiheimilisins fá símann sinn og kom honum þannig í samband við ónefnda manninn. Ónefndi maðurinn falaðist eftir að kaupa gras og hass og sagði gistihússeigandinn að hann seldi hassið á 3.000 krónur skammtinn og grasið á 2.500. Ónefndi maðurinn falaðist eftir 20 skömmtum, tíu af hvoru, og það var ekkert vandamál að útvega það. Sagði gistihússeigandinn að það myndi kosta tæplega 50 þúsund krónur.
Endurrit af meirihluta símtalsins er eftirfarandi:
Ónefndur maður (ÓN): Áttu eitthvað gras og {óskýrtX) svona?
Eigandinn (M): Já, ef þú ert með einhvern aur.
ÓN: Já, hvað kostar þetta?
M: Hvað ætlarðu að kaupa mikið?
ÓN: Bara tíu stykki af hvoru.
M: Ég get selt þér stuðið á þrjú kall og ég á þetta græna á bara tvö og fimm.
ÓN: Má ég þá hringja í þig seinna í dag, hitti þig bara rétt við gistiheimilið.
M: Einhvers staðar rétt um fimmtíu kall, einhvers staðar rétt undir því.
ÓN: Hitti ég þig þá ekki bara einhvers staðar rétt við Þverholt 20?
M: Ég veit ekki hvar ég á heima.
ÓN: Ég er ekki að segja hvar þú átt heima, við getum hist bara einhvers staðar þarna í Þverholtinu, ég er að meina það.
M: Jájá, við finnum pottþétt einhvern stað.
ÓN: Á ég ekki bara að heyra í þér?
M: Ekki málið
ÓN: Ok, vinur, sé þig.
Hljóðupptakan af símtalinu var send til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgi.
Eigandi gistiheimilisins Víkingur er Magnús Þór Sverrisson og er hann með skráð lögheimili á staðnum. DV náði sambandi við Magnús sem harðneitaði því að hann selji fíkniefni á staðnum og kannaðist ekki við umrætt símtal.
„Ég hef ekki selt nein kannabisefni, það er ekkert í kringum kannabisefni, en það er fullt af fólki í húsinu mínu sem hefur einhvern tíma örugglega notað kannabisefni,“ sagði Magnús.
Margir sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu, meðal annars heimilislaust fólk, gistir á gistiheimilinu.
Magnús segir við DV að hann hafi ekki átt í umræddu símtali og það hljóti að vera einhver annar en hann á upptökunni. Hann vildi samt ekki fá að heyra upptökuna en DV bauðst til að senda honum hana í tölvupósti.
„Ég hef engan áhuga á að heyra þetta, sko, ef þú ert að tala um eitthvað fólk í húsinu mínu, þá er fullt af alls konar veiku fólki í húsinu mínu. Þú mátt hafa það eins og þú vilt sko, ég þekki þetta bara ekki,“ sagði Magnús.
Rödd hans í símtalinu við DV hljómar nákvæmlega eins og röddin á umræddri hljóðupptöku auk þess sem efnisatriði í símtalinu gefa sterklega til kynna að hann sé eigandi gistiheimilisins.