fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Jóhannes með skilaboð til nýkjörinna sveitarstjórnarmanna – „Hvort heldur þú að þau áhrif verið jákvæð eða neikvæð fyrir þessi börn?“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 18. maí 2026 11:00

Miðflokkurinn beindi spjótum sínum að regnbogafánanum í kosningabaráttunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og stjórnarmaður í Samtökunum ´78, segir ábyrgð nýkjörins sveitarstjórnarfólks mikla þegar kemur að hinsegin börnum. Um sjö þúsund börn í grunn- og framhaldsskólum segjast vera hinsegin en sumir stjórnmálamenn berjist gegn hinsegin fræðslu í skólum.

„Hinsegin fólk á Íslandi gekk að kjörborðinu eins og aðrir í samfélaginu, eftir kosningabaráttu sem minnti rækilega á að það er þörf á áminningu eins og IDAHOBIT deginum á Íslandi, ekki síður en annars staðar í heiminum,“ segir Jóhannes í aðsendri grein á Vísi en í gær, 17. maí var alþjóðlegur baráttudagur gegn fordómum gegn hinsegin fólki.

Barátta gegn hinseginfræðslu

„Sum framboð virtust þannig telja það mikilvægt fyrir menntun barna að þau sjái tölur en ekki bókstafi á einkunnaspjaldinu, en höfðu það annað hvort á stefnuskránni eða básúnuðu með orðræðu frambjóðenda að ótækt væri að leyfa hinsegin fræðslu í skólum, fræðslu sem styður við markmið aðalnámskrár um jafnrétti og mannréttindi og byggir á hæfniviðmiðum námskrárinnar,“ segir Jóhannes og ekki fer á milli mála að hann er einkum að tala um Miðflokkinn.

Bendir Jóhannes á að markmið fræðslunnar sé að búa hinsegin börnum og ungmennum, sem og börnum hinsegin foreldra, öruggara umhverfi og stuðla að opnara og frjálsara skólasamfélagi. Það gagnast öllum börnum og er fyrst og fremst öflug forvarnaraðgerð.

Barátta gegn regnbogafánanum

„Á sama hátt varð mikil umræða um það hvort regnbogafánar mættu hanga uppi í og við grunnskóla því á nokkrum framboðum og frambjóðendum mátti skilja að það væri ótækt með öllu,“ segir Jóhannes. En Miðflokkurinn hefur beint spjótum sínum að regnbogafánanum og vill hann niður úr skólum.

Sjá einnig:

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

„Ofan í kaupið reyndu sumir frambjóðendur svo að bjarga sér úr öngstræti umræðunnar með því að gefa í skyn að þau hefðu ekkert á móti „gamla góða“ regnbogafánanum, en „nýi fáninn“ væri einhvern vegin ekki í lagi. Undarleg nálgun, því allir regnbogafánarnir tákna nákvæmlega það sama, samþykki og öryggi hinsegin fólks í samfélaginu,“ segir Jóhannes og er augljóslega að vísa til orða Ara Edwald oddvita Miðflokksins í Reykjavík.

Jóhannes segir að nú liggi fyrir úrslit í sveitarstjórnarkosningunum og því sé vert að spyrja alla sveitarstjórnarfulltrúa: Hvað ætlar þú að gera á kjörtímabilinu til að draga úr fordómum gegn hinsegin fólki? Ætlar þú að skipa skólum að draga niður regnbogafána Ætlar þú að segja upp samningum sveitarfélagsins um hinsegin fræðslu í skólum sem er eina raunverulega forvarnaverkefnið gegn hinsegin fordómum í skólum á Íslandi?

Risastór hópur barna og unglinga

Samkvæmt íslensku æskulýðsrannsókninni í unglingadeildum grunnskóla og í framhaldsskóla upplifa nærri 20 prósent nemanda sem hinsegin á einhvern hátt. Um sjö þúsund börn segjast vera hinsegin.

„Stjórnmálafólk sem er andsnúið hinsegin fræðslu í skólum heldur því gjarnan á lofti að þau séu ekki á móti neinum, allir megi vera eins og þau eru fyrir þeim, en fræðsla um hinsegin málefni eigi bara ekki erindi við börn og eigi því ekki heima í skólum. Nærri allir nemendur í unglingadeildum grunnskóla og framhaldsskólum eru börn undir 18 ára aldri,“ segir Jóhannes. „Ef þú kæri sveitarstjórnarfulltrúi, ætlar að berjast gegn því að regnbogafáninn sem þau skynja sem tákn um öryggi og samþykki í skólasamfélaginu megi ekki áfram vera það, þá hefur það áhrif á líf þeirra. Ef þú kæri sveitarstjórnarfulltrúi, ætlar að afnema forvarnafræðsluna sem styður við betri þekkingu á veruleika þeirra, eðlilega virðingu fyrir þeim sem persónum, góð samskipti þeirra við aðra nemendur og öryggi þeirra í skólanum, þá hefur það áhrif á líf þeirra. Hvort heldur þú að þau áhrif verið jákvæð eða neikvæð fyrir þessi börn?“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn