fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Eyjan

Kristrún Frostadóttir: Valið stendur milli harðs hægri meirihluta eða skynsemi út frá miðjunni

Eyjan
Föstudaginn 15. maí 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfylkingin vill breytingar en ekki kollsteypur. Í stærsta prófkjöri landsins í Reykjavík í byrjun ársins varð mikil endurnýjun á listanum. Kosningarnar á morgun eru stórpólitískar. Það er tekist t.d. á um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn á að fá að selja orkuna okkar, hvort niðurgreiða á fyrirtækjaleikskóla þar sem starfsmenn tiltekinna fyrirtækja fá forgang. Fáum við harðan hægri meirihluta í borginni eða skynsemi út frá miðjunni. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Kristrún Frostadóttir - 4
play-sharp-fill

Eyjan - Kristrún Frostadóttir - 4

„Fyrir mér er hreina pólitíkin um hvort við fáum harðan hægrimeirihluta í borginni eða fáum einhverja skynsemi frá miðju og svona yfir í félagslega grunninn , sem ég er auðvitað hlynnt. Hún snýr að þessum hlutum sem ég var að nefna hérna áður. Ætlum við að hafa orkuna í okkar eigu? Ætlum við að passa upp á okkar eigin eigur eða ætlum við að fara í einhverja dogmatík og láta Sjálfstæðisflokkinn selja orkuna okkar? Ætlum við að treysta okkur í að taka ábyrgð á samfélaginu okkar og byggja upp húsnæði fyrir alla, ekki bara fólk með rúm fjárráð? Og ætlum við að tryggja það að ef það þarf að borga viðbótargreiðslur til þess að manna betur í leikskólum, ætlum við í sameiningu að greiða fyrir það eða láta lítinn hóp borga fyrir það?

Þetta fyrir mér er miklu hreinni og skýrari átakalína í pólitík sem birtist bara mjög víða í litlum og stærri sveitarfélögum. Ég nefndi Fjarðabyggð áðan og Kópavog en ég veit að til dæmis á Ísafirði hafa þau áhyggjur líka af því að það séu svona hugmyndir um að leiða svipað módel þannig að þetta er að smitast út víða og af því ég sagði áðan að við í landsmálunum værum svolítið að reyna að skilja hismið frá kjarnanum og fara í kjarnamál jafnaðarmanna , ekki vera að rífast alltaf um svona menningarstríðsmál, ætli ég leyfi mér bara að segja, það er nákvæmlega eins í sveitarstjórnarpólitíkinni. Fólk er fast í átökum um hvort það eigi að laga almenningssamgöngur og sjá hvort við eigum að setja aðeins meiri pening í að byggja upp samgönguinnviði í staðinn fyrir að við tökumst á um eignarhald á samfélagslegum innviðum, hver á að styðja við fólk í viðkvæmri stöðu og hvort við pössum upp á hvert annað hérna. Ég myndi auðvitað vilja sjá stjórnmálaumræðuna fókusera á það og þar getur fólk verið með skiptar skoðanir og ég virði það alveg en við vitum hvar við stöndum í þeim málum í Samfylkingunni.“

Já, þegar allt kemur til alls þá er þetta alveg stórpólitískt og þar sem sveitarstjórnarmálin, þau hafa svo mikil áhrif, það sem er ákveðið í sveitarstjórnum, það ræður því í hvernig samfélagi við búum að stórum hluta, þannig að þetta eru stórpólitískar kosningar.

„Þetta eru stórpólitískar kosningar. Ég skil alveg dæmis eins og í Reykjavík að fólk vilji sjá ákveðnar breytingar. Mér finnst það eðlilegt, mér finnst það hollt. En við höfum sagt, við viljum sjá breytingar með jafnaðarmennsku, við viljum ekki sjá að við förum í einhverja kollsteypu á hvernig við rekum samfélagið okkar. Við höfum auðvitað verið í grundvallaratriðum ósammála svona þessum stóru línum í húsnæðismálum, ja, leikskólamálum, það er verið að tala fyrir fyrirtækjareknum leikskólum. Eins og þú eigir að fá forgang ef þú vinnur hjá stórfyrirtæki og láta síðan aðra útsvarsgreiðendur niðurgreiða það. Ég hef ekkert á móti því ef þú vilt borga 300 til 400 þúsund á mánuði fyrir að vera í sérleikskóla með barnið þitt, gott og vel. En ef þú vilt að aðrir niðurgreiði það fyrir þig svo þú fáir forgang, það er annað mál. Við höfum verið með einkarekna leikskóla eins og Hjallastefnuna sem hefur gengið mjög vel. En það er ekki forgangur tengdur hvar þú vinnur.

Þetta eru svona grundvallaratriði sem við erum að sjá ákveðnar breytingar á. Þannig að það er bara mjög mikið undir í þessum kosningum núna. Það þarf enginn að efast um hvar ég auðvitað stend í þessum málefnum og auðvitað vill maður bara vinna vel með sveitarstjórum og bæjarstjórum og borgarstjóra landsins, en það er hægt að vera ósátt með stakar framkvæmdir, stefnumál, að eitthvað hafi gengið aðeins of hægt, að það þurfi aðeins að breyta um fókus og við fórum nú í stærsta prófkjör landsins núna í byrjun ársins. Þar var skipt um fólk í brúnni, það voru gerðar ákveðnar breytingar á listum hringinn í kringum landið, þannig að við erum að taka það til okkar líka víða, en breytingar eru eitt, kollsteypur eru annað.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg
Hide picture