fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Pressan

Ofmetnuðust í svikunum og það varð þeim að falli

Pressan
Föstudaginn 15. maí 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregluembætti víða um heim hafa á undanförnum árum varað við óprúttnum svikurum sem gjarnan herja á eldra fólk og nýta sér traust þess og vanþekkingu í von um skjótfenginn gróða. Svik sem þessi fara einkum fram í gegnum Internetið en þrjótarnir nýta sér þó einnig fleiri leiðir. Eitt slíkt mál kom upp í Ventura í Los Angeles.

Eldri borgari fékk dularfull skilaboð þar sem hann var beðinn um að hringja samstundis. Þá hófst atburðarás sem lauk með því að eldri borgarinn mætti stressaður til leynifundar við aðila sem hann taldi vera á vegum lögreglunnar. Þessum einstaklingi gaf hann upp sérstakan leynikóða og afhenti svo 25 þúsund dollara, eða rúmlega þrjár milljónir króna.

Viðtakandinn var þó enginn lögreglumaður. Hér var um að ræða hápunktinn á vel útfærðum svikum. Svikin heppnuðust í raun svo vel að gerendurnir, parið Shaohua Sun og Yanwen Gu, ákváðu að láta reyna á þetta aftur. Það varð þeim þó að falli að hafa beint spjótunum aftur að sama þolandanum. Að þessu sinni kröfðust þau rúmlega 6 milljóna.

Eldri borgarinn hafði áttað sig á svikunum og þegar svikararnir höfðu aftur samband vildi svo skemmtilega til að hann sat þá í skýrslutöku hjá lögreglunni. Lögregla greip svikarana glóðvolga og parið játaði sök greiðlega. Þau hafa nú verið ákærð fyrir sérstaklega ófyrirleitin svik gegn berskjölduðum eldri borgara og eiga yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi.

„Þökk sé framúrskarandi rannsókn og skjótum viðbrögðum götudeildar lögreglunnar í Ventura tókst að hafa hendur í hári sakborninganna áður en þeir gátu svikið fé úr fleiri varnarlausum eldri borgurum,“ sagði héraðssaksóknarinn Erik Nasarenki í yfirlýsingu í vikunni.

Svikin fóru þannig fram að manninum bárust skilaboð um undarlegar hreyfingar á kreditkorti hans. Þaðan þróaðist málið í að bankareikningur hans hefði komið upp í rannsókn lögreglu á meintu barnaníði. Eðlilega varð maðurinn miður sín og hringdi í númer sem var gefið upp í skilaboðunum sem átti að tilheyra svikadeild bankans. Þannig atvikaðist það að maðurinn endaði með að taka áðurnefnda fjárhæð út af reikningi sínum, sem svikararnir sögðu vera sönnunargagn í áðurnefndri sakamálarannsókn, og afhenda leynilögreglumanni. Til að selja lygina sögðu svikararnir að maðurinn ætti að gefa upp sérstakt leyniorð þegar hann hitti lögreglumanninn til að sanna á sér deili. Maðurinn var í töluverðu uppnámi og allt gerðist mjög hratt. Hann taldi sig vera að gera allt rétt til að koma í veg fyrir að hann væri grunaður um hrottaleg brot gegn börnum. Það var ekki fyrr en degi eftir að hann afhenti svikurunum peningana sem það rann upp fyrir manninum að hann hefði verið svikinn. Hann fór þá á næstu lögreglustöð til að kæra brotið og einmitt þá höfðu þau Gu og Sun aftur samband. Að þessu sinni vildu þau 50 þúsund dollara.

Lögreglan varð himinlifandi yfir þessum vendingum og bað manninn að leika á svikarana. Hann mælti sér aftur mót við meinta leynilögreglumanninn en að þessu sinni mætti hann ekki sjálfur heldur sendi lögreglu í sinn stað. Gu mætti spennt til fundar við manninn en þegar hún sá lögreglu reyndi hún að flýja. Henni varð þó ekki kápan úr því klæðinu og var handtekin ásamt Su sem stóð vörð skammt undan.

Lögreglan hvetur íbúa í Ventura til að ræða við eldri ástvini sína um aðferðafræði svikaranna og tilkynna allan grun um svik umsvifalaust til lögreglu, en grunur leikur á að Gu og Sun séu hluti af alþjóðlegu glæpaneti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Rannsókn á andláti 11 ára drengs tók óhugnanlega stefnu

Rannsókn á andláti 11 ára drengs tók óhugnanlega stefnu
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Leynifjölskylda“ Michael Jackson opinberar ásakanir um kynferðislegt ofbeldi hans – „Hann var skrímsli“

„Leynifjölskylda“ Michael Jackson opinberar ásakanir um kynferðislegt ofbeldi hans – „Hann var skrímsli“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stjörnukokkur dæmdur til dauða fyrir voðaverk á jólunum

Stjörnukokkur dæmdur til dauða fyrir voðaverk á jólunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svört spá – Mörg flugfélög munu fara á hausinn

Svört spá – Mörg flugfélög munu fara á hausinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Notaðu „7-orðabrelluna“ þegar þú getur ekki sofið – Virkar eins og bremsa á hugsanir

Notaðu „7-orðabrelluna“ þegar þú getur ekki sofið – Virkar eins og bremsa á hugsanir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Næringarfræðingur segir að fólk eigi að hætta að borða beikon

Næringarfræðingur segir að fólk eigi að hætta að borða beikon
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það