fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Kársnesmálið: Réttarhöld dragast – Sænskir réttarlæknar rannsaka áverka á hinum látna

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 14. maí 2026 18:00

Mynd frá vettvangi glæpsins í lok nóvember.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir sænskir réttarlæknar voru í gær, miðvikudaginn 13. maí, dómkvaddir í Héraðsdómi Reykjaness í máli er varðar morð á rúmlega fertugum portúgölskum manni, til heimilis að Kársnesi í Kópavogi, þann 28. nóvember árið 2025.

Þrítugur grískur maður, að nafni Georgios Ntentes, hefur verið ákærður fyrir morðið. Í ákæru er hann sagður hafa veist með ofbeldi að Portúgalanum og svipt hann lífi með því að stinga hann þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan háls hans, með þeim afleiðingum að brotaþoli varð fyrir umfangsmiklu blóðtapi sem leiddi til dauða hans.

Georgious hefur neitað sök í málinu en ákæran var þingfest í byrjun apríl. Á þeim tímapunkti var aðalmeðerð ákvörðuð þann 6. og 8. maí en ekki varð af því og hefur aðalmeðferð verið frestað um óákveðinn tíma.

Ástæðan fyrir töfinni er dómkvaðning tveggja sænskra sérfræðinga, sem gerð er að beiðni lögmanns ákærða, Ómars Arnar Bjarnþórssonar. Frá þessu greinir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við DV.

„Það er verið að fá þarna dómkvadda réttarlækna til að leggja mat á áverka á hinum látna. Það tók töluverðan tíma að finna menn í þetta, það voru fengnir tveir Svíar í verkið en síðan þarf að þýða gögn sem tekur tíma,“ segir Karl Ingi. Aðspurður segir hann ómögulegt að geta sér til um hvenær aðalmeðferð í málinu verður.

Þó að nafngreindur maður hafi verið ákærður fyrir morðið og ákæra dragi upp mynd af því hvernig brotaþoli lét lífið er málið með vissum hætti hjúpað leynd þar sem ekkert hefur komið fram um morðástæðu. Fyrir liggur að mennirnir tveir voru kunnugir en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um kynni þeirra né möguleg ágreiningsefni. Aðspurður sagðist Karl Ingi ekkert geta gefið upp um mögulega ástæðu fyrir morðinu.

Sjá einnig: Georgios ákærður fyrir morð á Kársnesi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fósturfaðir á Suðurnesjum grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn fósturbarni

Fósturfaðir á Suðurnesjum grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn fósturbarni
Fréttir
Í gær

Einar segir allt stefna upp á við – Síðasti blái dagurinn á þriðjudag

Einar segir allt stefna upp á við – Síðasti blái dagurinn á þriðjudag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“