
Kristrún Frostadóttir hefur varað við því að nái Sjálfstæðisflokkurinn völdum í Reykjavík sé hætta á að hann muni á ný reyna að selja Orkuveituna en sem kunnugt er er það nákvæmlega það sem gerðist síðast þegar Sjálfstæðisflokkurinn var við völd í Reykjavík. Þá var flokkurinn í meirihlutasamstarfi með Framsókn, sem var undir forystu Björns Inga Hrafnssonar, sem nú er innsti koppur í búri hjá Miðflokknum.
Þó að því hafi verið afstýrt á sínum tíma að Orkuveitan yrði seld varð það eitt fyrsta verk meirihluta Sjálfstæðismanna og Björns Inga að selja 45% hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun. Hluturinn var seldur á 27 milljarða, sem verðmat Landsvirkjun á 60 milljarða. Reiknað til núvirðis nemur þessi sala um 70 milljörðum, sem aftur verðmetur Landsvirkjun á 155 milljarða.
Árin 2020-2026 greiddi Landsvirkjun 110 milljarða í arð til eigenda sinna. Hefði borgin átt áfram hlutinn í Landsvirkjun hefðu arðgreiðslur til hennar numið um 50 milljörðum á þessum stutta tíma. Sjálfstæðismenn seldu hins vegar þennan hlut árið 2006 fyrir 27 milljarða. Orðið á götunni er að þetta sé versta hlutabréfasala Íslandssögunnar og ljóst að borgarbúar töpuðu mörg hundruð milljörðum króna á henni. Allt í boði Sjálfstæðisflokks og Björns Inga.
Verðmæti Landsvirkjunar er margfalt á við það sem borgin mat það á er hlutur hennar var seldur. Fljótt á litið má slá á að verðmætið slagi hátt í 2000 milljarða, eða 30 falt á við það sem borgin seldi sinn hlut á. 45% hlutur í Landsvirkjun myndi þá vera nærri 900 milljarðar. Þennan hlut seldi Sjálfstæðisflokkurinn fyrir 27 milljarða.
Orðið á götunni er að full ástæða sé til að óttast um Orkuveituna og aðrar verðmætar eignir Reykjavíkurborgar komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda. Nýlega lýstu formaður flokksins og varaformaður því yfir opinberlega að upplagt sé að selja RARIK og Landsnet til að afla fjár til að lækka skatta á hina tekjuhæstu í landinu. Ekki er langt síðan formaðurinn lýsti vilja sínum til að ríkið selji Landsvirkjun.
Orðið á götunni er að engum blöðum sé um það að fletta að Sjálfstæðisflokkurinn vill helst selja alla orkuinnviði til einkaaðila. Þetta er yfirlýst stefna formanns og varaformanns og þegar kemur að borgarmálunum hræða sporin.
Orðið á götunni er að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn vilji fyrir alla muni mynda saman meirihluta eftir borgarstjórnarkosningarnar. Það væri þá nostalgísk og táknræn endurnýjun meirihlutans sem seldi Landsvirkjun á 27 milljarða 2006. Þá var Björn Ingi oddviti Framsóknar. Nú er Björn Ingi sá sem handvaldi lista Miðflokksins í borginni, leiddi til forsætis gamlan Sjálfstæðismann, Ara Edwald, og heldur um alla þræði bak við tjöldin.
Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn munu hins vegar ekki ná meirihluta og munu þurfa fleiri til að geta myndað meirihluta. Þeir geta reitt sig á stuðning Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar, nái hann kjöri. Einar er, rétt eins og Ari, Sjálfstæðismaður inn við beinið. Orðið á götunni er að hæpið sé að Þessir þrír flokkar, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn nái meirihluta og því myndu þeir þurfa fjórða flokkinn með sér. Það getur hins vegar reynst snúið og orðið á götunni er að mjög ólíklegt sé að neinum öðrum flokki finnist skynsamlegt að gerast hluti af slíkum meirihluta.