fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. maí 2026 07:22

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá samningi um orkusáttmála (Energy Charter Treaty, ECT) í ljósi þess að samningurinn gengur gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt íslenskra stjórnvalda í orkumálum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, en úrsögnin tekur gildi árið 2027 í samræmi við ákvæði samningsins og með því falla niður allar greiðslur til skrifstofu samningsins.

Samningurinn var undirritaður árið 1994 og fullgiltur af Íslands hálfu árið 2015 en markmið hans er meðal annars að tryggja fjárfestavernd og liðka fyrir óheftum viðskiptum með orku yfir landamæri. Með fullgildingu samningsins lýstu íslensk stjórnvöld vilja til að stuðla að frjálsum viðskiptum með orkuauðlindir og samvinnu á sviði orkuflutninga þvert á landamæri.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, setti af stað vinnu við að undirbúa úrsögn Íslands árið 2025 með hliðsjón af stefnu Íslands í orku- og loftslagsmálum. Af því tilefni setti ráðuneytið af stað samráðsferli en í því ferli komu ekki fram sjónarmið frá hagsmunaaðilum sem mæltu fyrir áframhaldandi aðild Íslands.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að á undanförnum árum hafi Evrópusambandið og að minnsta kosti 10 Evrópuríki sagt sig frá samningnum. Þykir samningurinn úreltur og samræmast illa nútímaáherslum í loftslags- og orkumálum. Samningurinn veitir fyrirtækjum rétt til að höfða mál gegn ríkjum fyrir sérstökum lokuðum gerðardómi, utan hefðbundins dómskerfis, vegna aðgerða sem geta haft áhrif á arðsemi fjárfestinga þeirra.

Á annað hundrað gerðarmál gegn ríkjum hafa verið höfðuð á grundvelli samningsins, meðal annars vegna aðgerða sem ríki hafa gripið til vegna orkuskipta . Hefur enginn alþjóðlegur viðskipta- eða fjárfestingarsamningur orðið grundvöllur eins margra gerðarmála fyrirtækja gegn ríkjum.

„Þátttaka Íslands í samningnum hefur verið lítil sem engin frá upphafi. Ísland hefur ekki tekið virkan þátt í starfsemi hans og engar vísbendingar eru um að íslensk fyrirtæki hafi nýtt sér ákvæði samningsins, hvorki hvað varðar fjárfestavernd né úrlausn ágreiningsmála. Þá hafa hvorki íslensk stjórnvöld né fyrirtæki verið aðilar að gerðarmálum á grundvelli samningsins. Það er mat ráðuneytisins að samningurinn sé ekki í samræmi við áherslur Íslands í orku- og loftslagsmálum,“ segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um
Fréttir
Í gær

Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði Terra

Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði Terra
Fréttir
Í gær

Sjónvarpsstjarna rifjar upp hræðilegt bílslys við Varmahlíð þar sem félagi hennar lést – „Ég barðist við sektarkennd“

Sjónvarpsstjarna rifjar upp hræðilegt bílslys við Varmahlíð þar sem félagi hennar lést – „Ég barðist við sektarkennd“
Fréttir
Í gær

Varar fólk við að kaupa hvolpa utan HRFÍ – „Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum“

Varar fólk við að kaupa hvolpa utan HRFÍ – „Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu